Önnur ræða Elíhú

1 Elíhú tók til máls og sagði:
2Hlustið á orð mín, spekingar,
hlýðið á mig, vitmenn.
3Eyrað prófar orð
og gómurinn bragðar mat
4en vér skulum velja hið rétta,
komast að raun um hvað gott er.
5Job hefur sagt: „Ég hef rétt fyrir mér
en Guð hefur svipt mig rétti mínum.
6Þótt ég hafi á réttu að standa er ég talinn lygari,
ör særði mig banvænu sári þó að ég hafi ekki brotið af mér.“
7Hvaða maður líkist Job,
sem svelgir í sig lastmæli eins og vatn,
8leitar samfélags við illvirkja
og umgengst guðleysingja?
9Hann sagði jafnvel: „Það er engum ávinningur
að vera í vinfengi við Guð.“
10Hlustið því á mig, vitru menn.
Fjarri fer því að Guð breyti ranglega
og Hinn almáttki aðhafist illt,
11heldur endurgeldur hann manninum verk hans
og lætur hann gjalda breytni sinnar.
12Nei, vissulega breytir Guð ekki ranglega
og Hinn almáttki hallar ekki réttinum.
13Hver trúði honum fyrir jörðinni
og hver fékk honum heiminn í hendur?
14Ef hann hugsaði aðeins um sjálfan sig,
tæki aftur til sín anda sinn og lífskraft,
15þá mundi allt sem lifir deyja
og maðurinn hverfa aftur til moldarinnar.
16Hlustaðu þá, hafir þú skilning,
leggðu hlustir við því sem ég hef að segja.
17Getur sá stjórnað sem hatar réttinn,
getur þú sakfellt hinn réttláta og volduga,
18þann sem segir við konung: „mannleysa,“
við höfðingjann: „óguðlegur,“
19sem ekki dregur taum höfðingja
og gerir ríkum ekki hærra undir höfði en fátækum
því að allir eru þeir verk handa hans?
20Þeir deyja skyndilega um miðja nótt,
mönnum er brugðið og þeir hverfa á braut,
voldugir víkja en ekki fyrir mannshendi.
21Augu Guðs hvíla á vegferð mannsins,
hann horfir á hvert hans spor,
22 ekkert það myrkur er til eða niðdimma
þar sem illvirkinn geti falist.
23 Hann ákveður engum manni tíma
til að koma fyrir dóm Guðs.
24 Hann molar hina voldugu án rannsóknar
og setur aðra í þeirra stað.
25 Hann gjörþekkir verk þeirra,
steypir þeim um nótt og þeir kremjast.
26 Hann hirtir þá fyrir illvirkin
í augsýn allra
27 því að þeir viku frá honum
og gáfu ekki gaum að vegum hans
28 svo að hróp nauðstaddra bárust til hans
og hann heyrði kvein hinna snauðu.
29 En hafist hann ekki að, hver getur þá sakfellt hann
og hver verður hans var byrgi hann auglit sitt?
En hann vakir yfir þjóðum og mönnum
30 svo að enginn óguðlegur skuli drottna
og verða þjóðinni snara.
31 En getur nokkur sagt við Guð:
„Mér er refsað án þess að ég hafi breytt ranglega.
32 Þú skalt kenna mér það sem ég hef ekki séð,
hafi ég gert rangt geri ég það ekki aftur.“
33 Á hann að endurgjalda eftir þínum geðþótta
þar sem þú hefur hafnað úrskurði hans?
Þú átt að velja, ekki ég,
og segðu nú frá því sem þú veist.
34 Skynsamir menn munu segja við mig,
vitrir menn sem hafa hlustað á mig:
35 „Job talaði ekki af þekkingu
og ummæli hans eru ekki skynsamleg.“
36 En Job verður reyndur áfram
því að hann hefur talað eins og vondur maður.
37 Hann bætir misgjörðum ofan á synd sína,
lætur háðsyrði falla meðal vor
og sýnir mótþróa.