Hórkonan og börn hennar

1 Orð Drottins sem barst Hósea Beerísyni þegar Ússía, Jótam, Akas og Hiskía voru konungar í Júda og Jeróbóam Jóasson var konungur í Ísrael.
2 Drottinn tók nú að tala til Hósea. Drottinn sagði við Hósea:
„Farðu og gakktu að eiga hórkonu
og eignastu hórbörn
því að landið drýgir hór
og hverfur frá Drottni.“
3Þá fór hann og gekk að eiga Gómer Diblaímsdóttur,
hún varð þunguð og ól honum son.
4Drottinn sagði við hann:
„Láttu hann heita Jesreel
því að eftir skamma hríð
dreg ég ætt Jehú til ábyrgðar
fyrir blóðbaðið í Jesreel
og bind enda á konungdæmi Ísraelsmanna.
5Á þeim degi brýt ég boga Ísraels á Jesreelsléttu.“
6Hún varð aftur þunguð og ól dóttur.
Drottinn sagði við Hósea:
„Gefðu henni nafnið Miskunnarvana
því að ég mun hvorki
miskunna Ísraelshúsi framar né fyrirgefa því.
7En ég mun miskunna Júdahúsi
vegna Drottins, Guðs þess,
en ég mun ekki hjálpa því
með boga, sverði eða bardaga,
hestum eða riddurum,
heldur vegna Drottins, Guðs þess.“
8Þegar Gómer hafði hætt að gefa Miskunnarvana brjóst
varð hún aftur þunguð og ól son.
9Drottinn sagði:
„Láttu hann heita Ekki-lýður-minn
því að þér eruð ekki lýður minn
og ég verð ekki með yður.“