1 Davíðssálmur.
Drottinn, hver fær að leita hælis í tjaldi þínu,
hver má dveljast á þínu heilaga fjalli?
2Sá sem gengur í flekkleysi
og ástundar réttlæti
og talar sannleik af hjarta,
3sá sem ekki ber út róg með tungu sinni,
gerir náunga sínum ekki illt
og leiðir ekki skömm yfir nágranna sinn,
4sá sem fyrirlítur þann sem illa breytir
en heiðrar þá sem óttast Drottin,
sá sem heldur eiða sína
þótt það sé honum til tjóns,
5sá sem ekki lánar fé sitt gegn vöxtum
og þiggur ekki mútur í máli gegn saklausum.
Sá sem þetta gerir
er óhultur að eilífu.