Fyrirmæli um helgidóm og guðsdýrkun

Inngangur

1 Drottinn ávarpaði Móse og sagði: 2 „Segðu Ísraelsmönnum að þeir skuli færa mér afgjald. Þið skuluð færa mér afgjald frá hverjum þeim manni sem lætur það af hendi af fúsum vilja. 3 Þetta er afgjaldið sem þið skuluð taka af þeim: gull, silfur og eir, 4 bláan og rauðan purpura og skarlat, fínt lín og geitahár, rauðlituð 5 hrútsskinn og höfrungahúðir, akasíuvið, 6 olíu á lampann, kryddjurtir í ilmolíu og ilmandi reykelsi, 7 sjóamsteina og steina til að greypa í hökulinn og brjóstskjöldinn.
8 Þeir skulu gera mér helgidóm svo að ég búi mitt á meðal þeirra. 9 Þeir skulu gera hann nákvæmlega eftir þeirri fyrirmynd af tjaldbúðinni og öllum áhöldum í henni sem ég sýni þér.

Örkin

10 Þeir skulu gera örk úr akasíuviði. Hún á að vera hálf þriðja alin á lengd, hálf önnur á breidd og hálf önnur alin á hæð. 11 Þú skalt leggja hana skíru gulli, þú skalt leggja hana gulli bæði að innan og utan. Þú skalt einnig gera brún úr gulli umhverfis hana. 12 Þú skalt steypa fjóra hringi úr gulli og festa þá á fjóra fætur hennar, tvo hringi á annarri hlið hennar og tvo á hinni. 13 Þú skalt gera stengur úr akasíuviði og leggja þær gulli 14 og þú skalt smeygja stöngunum gegnum hringina á hliðum arkarinnar svo að bera megi örkina á þeim. 15 Stengurnar eiga að vera í hringjunum, þær má ekki fjarlægja þaðan. 16 Þú skalt setja sáttmálstáknið, sem ég fæ þér, í örkina.
17 Þú skalt gera lok úr skíru gulli. Það skal vera hálf þriðja alin á lengd og hálf önnur á breidd. 18 Þú skalt einnig gera tvo kerúba úr drifnu gulli, 19 hvorn fyrir sinn enda loksins. Þú skalt festa kerúbana við hvorn enda loksins. 20 Kerúbarnir skulu vera þannig að þeir breiði út vængina upp á við svo að þeir hylji lokið með vængjum sínum, andlit þeirra skulu vita hvort að öðru. Andlit kerúbanna skulu snúa að lokinu. 21 Þú skalt leggja lokið ofan á örkina og setja sáttmálstáknið, sem ég fæ þér, í örkina. 22 Þarna mun ég mæta þér og ofan af lokinu milli beggja kerúbanna, sem eru yfir örkinni með sáttmálstákninu, mun ég tala við þig um allt sem ég býð þér að flytja Ísraelsmönnum.

Borð skoðunarbrauðanna

23 Þú skalt gera borð úr akasíuviði, tvær álnir á lengd, eina alin á breidd og hálfa aðra alin á hæð. 24 Þú skalt leggja það skíru gulli og gera gullkant umhverfis það. 25 Þú skalt setja þverhandarbreiðan lista hringinn í kring og brún úr gulli á hann. 26 Þú skalt gera fjóra hringi úr gulli og setja hringina á fjögur horn borðsins þar sem fjórir fætur þess eru. 27 Hringirnir eiga að vera þétt við listann sem höldur fyrir stengurnar sem borðið skal borið með. 28 Þú skalt gera stengurnar úr akasíuviði og leggja þær gulli. Á þeim skal bera borðið. 29 Þú skalt gera fötin, skálarnar, bollana og kerin sem heyra borðinu til og höfð eru fyrir dreypifórnir. Þú skalt gera þau úr skíru gulli. 30 Þú skalt sjá til þess að skoðunarbrauð liggi sífellt á borðinu frammi fyrir augliti mínu.

Ljósastikan

31 Þú skalt gera ljósastiku úr skíru gulli. Ljósastikan skal gerð með drifnu smíði, bæði stétt hennar og fótur. Bikarar hennar, knappar og blóm skulu vera samföst henni. 32 Sex armar skulu ganga út frá hliðum ljósastikunnar, þrír armar frá annarri hliðinni og þrír armar frá hinni. 33 Þrír bikarar í lögun eins og möndlublóm skulu vera á fyrsta arminum með knappi og blómi og þrír bikarar í lögun eins og möndlublóm með knappi og blómi á næsta armi. Þannig eiga allir sex armarnir að vera sem ganga út frá ljósastikunni. 34 Á sjálfri ljósastikunni skulu vera fjórir bikarar í lögun eins og möndlublóm með knöppum og blómum. 35 Einn knappur á að vera undir báðum neðstu örmum hennar, einn knappur undir næstu tveimur örmum hennar og einn knappur undir báðum efstu örmum hennar. Þannig eiga allir sex armarnir að vera sem ganga út frá ljósastikunni. 36 Knappar hennar og armar skulu vera samfastir henni, allt drifin smíði úr skíru gulli. 37 Þú skalt gera sjö lampa fyrir ljósastikuna og koma þeim þannig fyrir að þeir lýsi svæðið fyrir framan hana. 38 Ljósasöx og skarpönnur, sem fylgja henni, eiga að vera úr skíru gulli. 39 Þú skalt gera ljósastikuna og öll þessi áhöld úr einni talentu skíragulls. 40 Sjáðu til þess að þú gerir hana eftir þeirri fyrirmynd sem þér var sýnd á fjallinu.