Jesú fagnað

1 Þegar þeir nálgast Jerúsalem og koma til Betfage og Betaníu við Olíufjallið sendir Jesús tvo lærisveina sína 2 og segir við þá: „Farið í þorpið hér fram undan ykkur. Um leið og þið komið þangað munuð þið finna fola bundinn sem enginn hefur enn komið á bak. Leysið hann og komið með hann. 3 Ef einhver spyr ykkur: Hvers vegna gerið þið þetta? þá svarið: Drottinn[ þarf hans við, hann sendir hann jafnskjótt aftur hingað.“
4 Þeir fóru og fundu folann bundinn við dyr úti á strætinu og leystu hann. 5 Nokkrir sem stóðu þar sögðu við þá: „Hvers vegna eruð þið að leysa folann?“
6 Þeir svöruðu eins og Jesús hafði sagt og þeir létu þá fara. 7 Síðan færðu þeir Jesú folann og lögðu á hann klæði sín en hann settist á bak. 8 Og margir breiddu klæði sín á veginn en aðrir lim sem þeir höfðu skorið af trjánum. 9 Þeir sem á undan fóru og eftir fylgdu hrópuðu: „Hósanna. Blessaður sé sá sem kemur í nafni Drottins! 10 Blessað sé hið komandi ríki föður vors Davíðs! Hósanna í hæstum hæðum!“
11 Jesús fór inn í Jerúsalem og í helgidóminn. Þar leit hann yfir allt en þar sem komið var kvöld fór hann til Betaníu með þeim tólf.

Ekkert nema blöð

12 Á leiðinni frá Betaníu morguninn eftir kenndi Jesús hungurs. 13 Þá sá hann álengdar laufgað fíkjutré og fór að gá hvort hann fyndi nokkuð á því. En þegar hann kom að því fann hann ekkert nema blöð enda var ekki fíknatíð. 14 Jesús sagði þá við tréð: „Enginn neyti framar ávaxtar af þér að eilífu!“ Þetta heyrðu lærisveinar hans.

Hús mitt bænahús

15 Þeir komu til Jerúsalem og Jesús gekk í helgidóminn og tók að reka út þá sem voru að selja þar og kaupa og hratt um borðum víxlaranna og stólum dúfnasalanna. 16 Og engum leyfði hann að bera neitt um helgidóminn. 17 Og hann kenndi þeim og sagði: „Er ekki ritað: Hús mitt á að vera bænahús fyrir allar þjóðir? En þið hafið gert það að ræningjabæli.“
18 Æðstu prestarnir og fræðimennirnir heyrðu þetta og leituðu fyrir sér hvernig þeir gætu ráðið hann af dögum. Þeim stóð ótti af honum því að allt fólkið hreifst mjög af kenningu hans.
19 Þegar leið að kvöldi fóru þeir úr borginni.

Trúið á Guð

20 Árla morguns fóru þeir hjá fíkjutrénu og sáu að það var visnað frá rótum. 21 Pétur minntist þess sem gerst hafði og segir við hann: „Meistari, sjáðu! fíkjutréð, sem þú formæltir, er visnað.“
22 Jesús svaraði þeim: „Trúið á Guð. 23 Sannlega segi ég ykkur: Hver sem segir við fjall þetta: Lyft þér upp og steyp þér í hafið, og efar ekki í hjarta sínu heldur trúir að svo fari sem hann mælir, þá gerist það. 24 Fyrir því segi ég ykkur: Ef þið biðjið Guð um eitthvað og treystið því að þið öðlist það, þá mun hann veita ykkur það. 25 Og þegar þið eruð að biðja, þá fyrirgefið þeim sem hafa gert eitthvað á hlut ykkar til þess að faðir ykkar á himnum fyrirgefi einnig ykkur misgjörðir ykkar. [ 26 Ef þið fyrirgefið ekki mun faðir ykkar á himnum ekki heldur fyrirgefa misgjörðir ykkar.]“[

Hver gaf þér það vald?

27 Þeir koma aftur til Jerúsalem og þegar hann var á gangi í helgidóminum koma til hans æðstu prestarnir, fræðimennirnir og öldungarnir 28 og segja við hann: „Með hvaða valdi gerir þú þetta? Hver gaf þér það vald að þú gerir þetta?“
29 Jesús sagði við þá: „Ég vil leggja eina spurningu fyrir ykkur. Svarið henni og ég mun segja ykkur með hvaða valdi ég geri þetta. 30 Hver fól Jóhannesi að skíra, var það Guð eða voru það menn? Svarið mér!“
31 Þeir ráðguðust hver við annan um þetta og sögðu: „Ef við svörum: Það var Guð, spyr hann: Hví trúðuð þið honum þá ekki? 32 Eða ættum við að svara: Það voru menn?“ – Það þorðu þeir ekki fyrir fólkinu því allir töldu að Jóhannes hefði verið sannur spámaður. 33 Þeir svöruðu Jesú: „Við vitum það ekki.“
Jesús sagði við þá: „Ég segi ykkur þá ekki heldur hver fól mér að gera þetta.“