Um fánýti drauma

1Vonir óhygginna manna eru fánýtar og tál,
draumar lyfta hugum einfaldra.
2 Sá er reiðir sig á drauma er líkastur þeim
sem grípa vill skugga og eltir vind.
3 Draumsýn er eftirlíking veruleikans
eins og ásjóna og mynd af ásjónu.
4 Má nokkuð hreint úr óhreinu koma?
Hvaða sannleikur getur komið af lygi?
5 Fánýtir eru spádómar, fyrirboðar og draumar,
eins og hugarórar jóðsjúkrar konu.
6 Séu þeir eigi sendir þér sem vitjun frá Hinum hæsta
skalt þú eigi leggja þér þá á hjarta.
7 Draumar ginntu marga á glapstigu
og ollu þeim vonbrigðum sem treystu á þá.
8 Án blekkinga verður lögmálið uppfyllt
og spekin fullkomin í munni þess sem heldur það.

Um ferðalög

9Margt veit sá maður er víða fór,
viturlegar eru reynds manns ræður.
10 Lítið veit sá sem reyndi fátt,
11 víðförull maður safnar hyggindum.
12 Fjölmargt sá ég á ferðum mínum,
ég veit fleira en ég greini frá.
13 Tíðum lenti ég í lífshættu
en ég hlaut björgun sakir þess sem mér lærðist.

Um guðsótta

14Þeir sem óttast Drottin munu lifa,
15 von þeirra byggist á honum sem getur frelsað þá.
16 Ekkert hræðist sá sem óttast Drottin,
hann brestur aldrei kjark því að Drottinn er von hans.
17 Sæll er sá sem óttast Drottin.
18 Hverjum treystir hann? Hver er styrkur hans?
19 Augu Drottins hvíla á þeim er elska hann,
hann er máttugur skjöldur og styrk stoð,
hann er hlíf í breyskju og forsæla um hádag,
vörn við hrösun og forðar frá falli.
20 Hann hressir sálina og hýrgar augun,
veitir heilsu, líf og blessun.

Um fórnir

21Sá sem fórnar því sem illa var fengið
færir eigi flekklausa fórn,
22 Drottni þóknast eigi gjafir ranglátra.
23 Hinum hæsta geðjast ekki fórnir guðlausra
né fyrirgefur hann syndir sakir fjölda fórna.
24 Að færa fórn af fé fátækra
er að deyða son fyrir föðuraugum.
25 Brauð þurfamannsins er fátækum lífið sjálft,
sá er sviptir hann því hefur líf á samviskunni.
26 Sá verður náunga sínum að bana sem tekur björg hans,
27 sá úthellir blóði sem hefur laun af verkamanni.
28 Ef einn byggir upp og annar rífur niður,
hvað bera þeir úr býtum nema erfiðið eitt?
29 Ef einn biður og annar bölvar,
á hvorn mun Drottinn hlýða?
30 Hvað stoðar þann þvottur
sem bjó um lík ef hann snertir það aftur?
Hvað gagnaðist þá þvotturinn honum?
31 Svo fer þeim er syndgar aftur
að lokinni föstu fyrir syndir.
Hver mun hlusta á bænir slíks manns,
hvað mun það stoða hann að auðmýkja sig?