Vínviðurinn og greinarnar

1 „Ég er hinn sanni vínviður og faðir minn er vínyrkinn. 2 Hverja þá grein á mér sem ber ekki ávöxt sníður hann af og hverja þá sem ávöxt ber hreinsar hann svo að hún beri meiri ávöxt. 3 Þér eruð þegar hrein vegna orðsins sem ég hef talað til yðar. 4 Verið í mér, þá verð ég í yður. Greinin getur ekki borið ávöxt af sjálfri sér nema hún sé á vínviðnum. Eins getið þér ekki heldur borið ávöxt nema þér séuð í mér. 5 Ég er vínviðurinn, þér eruð greinarnar. Sá ber mikinn ávöxt sem er í mér og ég í honum en án mín getið þér alls ekkert gert. 6 Hverjum sem er ekki í mér verður varpað út eins og greinunum og hann visnar. Þeim er safnað saman og varpað á eld og brennt. 7 Ef þér eruð í mér og orð mín eru í yður, þá biðjið um hvað sem þér viljið og yður mun veitast það. 8 Með því vegsamast faðir minn að þér berið mikinn ávöxt og verðið lærisveinar mínir. 9 Ég hef elskað yður eins og faðirinn hefur elskað mig. Verið stöðug í elsku minni. 10 Ef þér haldið boðorð mín verðið þér stöðug í elsku minni, eins og ég hef haldið boðorð föður míns og er stöðugur í elsku hans.
11 Þetta hef ég talað til yðar til þess að fögnuður minn sé í yður og fögnuður yðar sé fullkominn. 12 Þetta er mitt boðorð, að þér elskið hvert annað eins og ég hef elskað yður. 13 Enginn á meiri kærleik en þann að leggja líf sitt í sölurnar fyrir vini sína. 14 Þér eruð vinir mínir ef þér gerið það sem ég býð yður. 15 Ég kalla yður ekki framar þjóna því þjónninn veit ekki hvað húsbóndi hans gerir. En ég kalla yður vini því ég hef kunngjört yður allt sem ég heyrði af föður mínum. 16 Þér hafið ekki útvalið mig heldur hef ég útvalið yður. Ég hef ákvarðað yður til að fara og bera ávöxt, ávöxt sem varir svo að faðirinn veiti yður sérhvað það sem þér biðjið hann um í mínu nafni. 17 Þetta býð ég yður, að þér elskið hvert annað.

Ef heimurinn hatar

18 Ef heimurinn hatar yður þá vitið að hann hefur hatað mig fyrr en yður. 19 Væruð þér af heiminum mundi heimurinn elska sína. Heimurinn hatar yður af því að þér eruð ekki af heiminum heldur hef ég útvalið yður úr heiminum. 20 Minnist orðanna sem ég sagði við yður: Þjónn er ekki meiri en herra hans. Hafi menn ofsótt mig þá munu þeir líka ofsækja yður. Hafi þeir varðveitt orð mitt munu þeir líka varðveita yðar. 21 En allt þetta munu þeir yður gera vegna nafns míns af því að þeir þekkja eigi þann sem sendi mig. 22 Hefði ég ekki komið og talað til þeirra væru þeir ekki sekir um synd. En nú hafa þeir ekkert til afsökunar synd sinni. 23 Sá sem hatar mig hatar og föður minn. 24 Hefði ég ekki unnið meðal þeirra þau verk sem enginn annar hefur gert væru þeir ekki sekir um synd. En nú hafa þeir séð þau og hata þó bæði mig og föður minn. 25 Svo hlaut að rætast orðið sem ritað er í lögmáli þeirra: Þeir hötuðu mig án saka.
26 Þegar hjálparinn kemur, sem ég sendi yður frá föðurnum, sannleiksandinn, er út gengur frá föðurnum, mun hann vitna um mig. 27 Þér skuluð einnig vitni bera því þér hafið verið með mér frá upphafi.