Áminning og hvatning

1 Þetta er nú í þriðja sinn sem ég kem til ykkar því að „aðeins skal framburður gilda að tvö eða þrjú vitni beri“. 2 Það sem ég sagði ykkur við aðra komu mína, það segi ég ykkur nú aftur fjarstaddur, bæði þeim sem brotleg hafa orðið og öðrum: Næsta sinn sem ég kem mun ég ekki hlífa neinum. 3 Þá fáið þið sönnun fyrir því að Kristur tali í mér eins og þið krefjist. Hann sýnir ykkur ekki linkind heldur er hann máttugur á meðal ykkar. 4 Hann var krossfestur af því að hann var veikur en Guð er máttugur og lætur hann lifa. Og einnig ég er veikur eins og hann en Guð veitir mér kraft og ég mun lifa með Kristi.
5 Rannsakið hvort trú ykkar kemur fram í breytni ykkar, prófið ykkur sjálf. Gerið þið ykkur ekki grein fyrir að Jesús Kristur lifir í ykkur? Það skyldi vera að þið stæðust ekki prófið. 6 En ég vona að þið komist að raun um að ég hef staðist prófið. 7 Ég bið til Guðs að þið gerið ekki neitt illt, ekki til þess að það sýni ágæti mitt heldur til þess að þið gerið hið góða. Ég gæti eins sýnst óhæfur. 8 Því að ekki megna ég neitt gegn sannleikanum heldur með hjálp hans. 9 Ég gleðst þegar ég er veikur en þið eruð styrk. Það sem ég bið um er að þið verðið fullkomin. 10 Þess vegna rita ég þetta fjarverandi til þess að ég þurfi ekki að sýna ykkur hörku og beita því valdi sem Drottinn hefur gefið mér þegar ég kem. Drottinn gaf mér vald mitt til þess að byggja upp, ekki til að rífa niður.
11 Að öðru leyti, bræður mínir og systur,[ verið glöð. Verið fullkomin, áminnið hvert annað, verið samhuga, lifið saman í friði. Þá mun Guð kærleikans og friðarins vera með ykkur. 12 Heilsið hvert öðru með heilögum kossi. Allir heilagir biðja að heilsa ykkur.
13 Náðin Drottins Jesú Krists, kærleiki Guðs og samfélag heilags anda sé með yður öllum.