Babelsturn

1 Allir jarðarbúar töluðu sömu tungu og notuðu sömu orð. 2 Svo bar við er þeir fluttust að austan að þeir fundu lágsléttu í Sínearlandi og settust þar að. 3 Þá sögðu þeir hver við annan: „Komum nú og búum til tígulsteina og brennum þá í eldi.“ Þeir notuðu tígulsteina í stað grjóts og bik í stað steinlíms.
4 Og þeir sögðu: „Komum nú, byggjum okkur borg og turn sem nái til himins. Þar með verðum við frægir en tvístrumst ekki um alla jörðina.“
5 Þá steig Drottinn niður til þess að sjá borgina og turninn sem mennirnir höfðu byggt.
6 Og Drottinn sagði: „Nú eru þeir ein þjóð og tala sömu tungu. Þetta er aðeins upphaf þess sem þeir munu taka sér fyrir hendur. Hér eftir mun ekkert verða þeim um megn sem þeir ætla sér. 7 Stígum nú niður og ruglum tungumál þeirra svo að enginn skilji annars mál.“
8 Og Drottinn tvístraði þeim þaðan um alla jörðina og þeir hættu við að byggja borgina. 9 Af þeim sökum heitir hún Babel [ að þar ruglaði Drottinn tungumál allrar jarðarinnar og þaðan tvístraði hann þeim um alla jörðina.

Niðjar Sems

10 Þetta er ættartala Sems. Sem var hundrað ára er hann gat Arpaksad, tveimur árum eftir flóðið. 11 Eftir fæðingu Arpaksads lifði Sem í fimm hundruð ár og gat syni og dætur.
12 Arpaksad var þrjátíu og fimm ára er hann gat Sela. 13 Eftir fæðingu Sela lifði Arpaksad í fjögur hundruð og þrjú ár og gat syni og dætur.
14 Sela var þrjátíu ára er hann gat Eber. 15 Eftir fæðingu Ebers lifði Sela í fjögur hundruð og þrjú ár og gat syni og dætur.
16 Eber var þrjátíu og fjögurra ára er hann gat Peleg. 17 Eftir fæðingu Pelegs lifði Eber í fjögur hundruð og þrjátíu ár og gat syni og dætur.
18 Peleg var þrjátíu ára er hann gat Reú. 19 Eftir fæðingu Reú lifði Peleg í tvö hundruð og níu ár og gat syni og dætur.
20 Reú var þrjátíu og tveggja ára er hann gat Serúg. 21 Eftir fæðingu Serúgs lifði Reú í tvö hundruð og sjö ár og gat syni og dætur.
22 Serúg var þrjátíu ára er hann gat Nahor. 23 Eftir fæðingu Nahors lifði Serúg í tvö hundruð ár og gat syni og dætur.
24 Nahor var tuttugu og níu ára er hann gat Tera. 25 Eftir fæðingu Tera lifði Nahor í hundrað og nítján ár og gat syni og dætur.
26 Tera var sjötíu ára er hann gat Abram, Nahor og Haran.

Niðjar Tera

27 Þetta er ættartala Tera:
Tera gat Abram, Nahor og Haran. Og Haran gat Lot. 28 Haran dó á undan Tera, föður sínum, í landi Úr í Kaldeu þar sem hann fæddist.
29 Þeir Abram og Nahor tóku sér konur. Kona Abrams hét Saraí en kona Nahors Milka. Var hún dóttir Harans, föður Milku og Ísku. 30 En Saraí var óbyrja. Hún átti ekki barn.
31 Nú tók Tera Abram, son sinn, og Lot, sonarson sinn, son Harans, og Saraí, tengdadóttur sína, konu Abrams, sonar síns, og þau lögðu af stað frá Úr í Kaldeu áleiðis til Kanaanslands. Þau komu til Harran og settust þar að.
32 Ævidagar Tera urðu tvö hundruð og fimm ár. Þá andaðist Tera í Harran.