Andi sannleikans og andi villunnar

1 Þið elskuðu, trúið ekki öllum sem segjast hafa andann, reynið þá heldur og komist að því hvort andinn sé frá Guði. Því margir falsspámenn eru farnir út í heiminn. 2 Af þessu getið þið þekkt anda Guðs: Sérhver andi, sem játar að Jesús sé Kristur kominn sem maður, er frá Guði. 3 En sérhver andi sem ekki játar Jesú er ekki frá Guði. Hann er andkristsins andi sem þið hafið heyrt um að komi og nú þegar er hann í heiminum.
4 Börnin mín, þið eruð af Guði og hafið sigrað falsspámennina því að andinn sem er í ykkur er öflugri en andinn sem er í heiminum. 5 Falsspámennirnir eru af heiminum. Þess vegna tala þeir eins og heimurinn talar og heimurinn hlýðir á þá. 6 Við erum af Guði. Hver sem þekkir Guð hlýðir á okkur. Sá sem ekki er af Guði hlýðir ekki á okkur. Af þessu þekkjum við andann sem flytur sannleikann og andann sem fer með lygar.

Kærleikur Guðs

7 Þið elskuðu, elskum hvert annað því að kærleikurinn er frá Guði kominn og hver sem elskar er barn Guðs og þekkir Guð. 8 Sá sem ekki elskar þekkir ekki Guð því að Guð er kærleikur. 9 Í því birtist kærleikur Guðs til okkar að Guð hefur sent einkason sinn í heiminn til þess að hann skyldi veita okkur nýtt líf. 10 Þetta er kærleikurinn: Ekki að við elskuðum Guð heldur að hann elskaði okkur og sendi son sinn til að vera friðþæging fyrir syndir okkar.
11 Þið elskuðu, fyrst Guð hefur elskað okkur svo mikið þá ber okkur einnig að elska hvert annað. 12 Enginn hefur nokkurn tíma séð Guð. Ef við elskum hvert annað þá er Guð í okkur og kærleikur hans er fullkomnaður í okkur. 13 Guð hefur gefið okkur anda sinn og þannig vitum við að við erum í honum og hann í okkur. 14 Við höfum séð og vitnum að faðirinn hefur sent soninn til að vera frelsari heimsins. 15 Hver sem játar að Jesús sé sonur Guðs, í honum er Guð stöðugur og hann í Guði. 16 Við þekkjum kærleikann, sem Guð hefur á okkur, og trúum á hann.
Guð er kærleikur og sá sem er stöðugur í kærleikanum er stöðugur í Guði og Guð er stöðugur í honum. 17 Fáum við elskað hvert annað og lifað eins og Kristur lifði hér á jörð, verðum við full djörfungar á degi dómsins. 18 Ótti er ekki í elskunni. Fullkomin elska rekur út óttann. Því að óttinn býst við hegningu en sá sem óttast er ekki fullkominn í elskunni.
19 Við elskum því að Guð elskaði okkur að fyrra bragði. 20 Ef einhver segir: „Ég elska Guð,“ en hatar trúsystkin sín[ er sá lygari. Því að sá sem elskar ekki bróður sinn eða systur,[ sem hann hefur séð, getur ekki elskað Guð sem hann hefur ekki séð. 21 Og þetta boðorð höfum við frá honum, að sá sem elskar Guð á einnig að elska bróður sinn og systur.[