Eiginkonur og eiginmenn

1 Eins skuluð þið, eiginkonur, vera eftirlátar eiginmönnum ykkar til þess að jafnvel þeir sem vilja ekki hlýða orðinu geti unnist orðalaust við hegðun kvenna sinna 2 þegar þeir sjá ykkar grandvöru og skírlífu hegðun. 3 Skart ykkar sé ekki ytra skraut, hárgreiðslur, gullskraut og viðhafnarbúningur 4 heldur hinn huldi maður hjartans, búinn óforgengilegri fegurð hógværs og hljóðláts anda. Þetta er dýrmætt í augum Guðs. 5 Þannig skreyttu sig einnig forðum hinar helgu konur er settu von sína til Guðs. Þær voru eiginmönnum sínum eftirlátar 6 eins og Sara hlýddi Abraham og kallaði hann herra. Og þið eruð orðnar börn hennar er þið hegðið ykkur vel og látið ekkert skelfa ykkur.
7 Eins skuluð þið, eiginmenn, sýna eiginkonum ykkar nærgætni sem hinum veikari og virða þær mikils því að þær munu erfa með ykkur náðina og lífið. Þá hindrast bænir ykkar ekki.

Óttaleysi í fylgd Krists

8 Að lokum, verið öll samhuga, hluttekningarsöm og elskið hvert annað, verið miskunnsöm, auðmjúk. 9 Gjaldið ekki illt með illu eða illmæli fyrir illmæli heldur þvert á móti blessið því að þið eruð til þess kölluð að öðlast blessunina.
10Sá sem vill elska lífið
og sjá góða daga
haldi tungu sinni frá vondu
og vörum sínum frá svikatali.
11Hann sneiði hjá illu og geri gott,
ástundi frið og keppi eftir honum.
12Því að augu Drottins hvíla á réttlátum
og eyru hans hneigjast að bænum þeirra.
En auglit Drottins er gegn þeim sem illt gera.

13 Hver er sá er mun gera ykkur illt ef þið kappkostið það sem er gott? 14 En þótt þið skylduð líða illt fyrir að gera það sem er rétt, þá eruð þið sæl. Hræðist eigi og skelfist eigi fyrir neinum. 15 En helgið Krist sem Drottin í hjörtum ykkar. Verið ætíð reiðubúin að svara hverjum manni sem krefst raka fyrir voninni sem þið eigið. 16 En gerið það með hógværð og virðingu og hafið góða samvisku til þess að þeir sem níða góða hegðun ykkar sem kristinna manna verði sér til skammar vegna þess sem þeir mæla gegn ykkur. 17 Ef það er vilji Guðs að þið líðið þá er það betra að þið líðið fyrir að breyta vel en fyrir að breyta illa.
18 Kristur dó[ fyrir syndir í eitt skipti fyrir öll, réttlátur fyrir rangláta, til þess að geta leitt ykkur til Guðs. Hann var deyddur að líkamanum til en lifandi ger í anda. 19 Þannig steig hann niður til andanna í varðhaldi og prédikaði fyrir þeim. 20 Þeir höfðu óhlýðnast fyrrum, á dögum Nóa, þegar Guð sýndi biðlund og beið meðan örkin var í smíðum. Í henni frelsuðust fáeinar – það er átta – sálir í vatni. 21 Þetta er fyrirmyndan skírnarinnar sem nú frelsar ykkur. Hún er ekki hreinsun óhreininda á líkamanum heldur bæn til Guðs um góða samvisku fyrir upprisu Jesú Krists 22 sem steig upp til himna, situr Guði á hægri hönd, og englar, völd og kraftar eru undir hann lagðir.