1 Vertu ekki orðhvatur, hjarta þitt hraði sér ekki að mæla orð frammi fyrir Guði. Guð er á himnum en þú á jörðu, vertu því ekki margorður.
2 Draumar koma þar sem áhyggjurnar eru miklar og úr verður heimskutal þar sem mörg orð eru viðhöfð.
3 Þegar þú gerir Guði heit frestaðu þá ekki að efna það því að hann hefur ekki velþóknun á heimskingjum. Efndu það sem þú lofar. 4 Betra er að þú heitir engu en að þú heitir og efnir ekki. 5 Leyfðu ekki munni þínum að baka líkama þínum sekt og segðu ekki við sendiboðann: Það var fljótfærni. Hvers vegna á Guð að reiðast orðum þínum og skemma verk handa þinna? 6 Því að þar sem mikið er um drauma og orð, þar er og mikill hégómi. Óttastu heldur Guð.

Gott og fagurt

7 Sjáir þú hinn snauða undirokaðan og að rétti og réttlæti er hallað í héraðinu þá furða þú þig ekki á því athæfi því að hár vakir yfir háum og hinn hæsti yfir þeim öllum. 8 Konungur hlynntur jarðyrkju er landinu mikill ávinningur.
9 Sá sem elskar peninga seðst aldrei af peningum og sá sem elskar auðinn hefur ekki gagn af honum. Einnig það er hégómi.
10 Þar sem eigurnar vaxa, þar fjölgar og þeim er eyða þeim, og hvaða gagn hefur eigandinn af þeim annað en að horfa á þær?
11 Sætur er svefninn þeim sem erfiðar, hvort sem hann matast lítið eða mikið, en offylli auðmanns ljær honum ekki svefnfrið. 12 Mikið böl hef ég séð undir sólinni: auð sem eigandinn varðveitir sjálfum sér til ógagns. 13 Glatist þessi auður fyrir slys og hafi eigandinn eignast son, þá verður ekkert til handa honum. 14 Eins og hann kom af móðurlífi, eins mun hann fara burt aftur nakinn eins og hann kom og hann mun ekkert taka með sér fyrir strit sitt, sem hann fái borið í hendi sér. 15 Það er einnig afleitt böl: Hann mun fara aftur öldungis eins og hann kom og hvaða gagn hefur hann af því að hann stritar út í veður og vind? 16 Allan aldur sinn elur hann í myrkri, við sorg og mikla gremju, þjáningu og reiði.
17 Það sem mér hefur virst gott og fagurt er að maðurinn eti og drekki og njóti fagnaðar af öllu striti sínu því er hann streitist við undir sólinni alla ævidaga sína, þá er Guð gefur honum, því að það er hlutdeild hans. 18 Þegar Guð gefur einhverjum ríkidæmi og auðæfi og gerir hann færan um að njóta þess, taka hlutdeild sína og að gleðjast yfir starfi sínu, þá er það einnig Guðs gjöf. 19 Slíkur maður hugsar ekki mikið um ævidaga lífs síns meðan Guð fær honum nóg að sýsla við fögnuð hjarta síns.