Jóhannes skírari

1 Á þeim dögum kemur Jóhannes skírari fram og prédikar í óbyggðum Júdeu 2 með þessum orðum: „Takið sinnaskiptum, himnaríki er í nánd.“ 3 Nú rættist það sem Jesaja spámaður segir:
Rödd hrópanda í eyðimörk:
Greiðið veg Drottins,
gerið beinar brautir hans.

4 Jóhannes bar klæði úr úlfaldahári og leðurbelti um lendar sér og hafði til matar engisprettur og villihunang. 5 Menn streymdu til hans frá Jerúsalem, allri Júdeu og Jórdanbyggð, 6 létu hann skíra sig í ánni Jórdan og játuðu syndir sínar.
7 Þegar Jóhannes sá að margir farísear og saddúkear komu til skírnar sagði hann við þá: „Þið nöðrukyn, hver kenndi ykkur að flýja komandi reiði? 8 Sýnið í verki að þið hafið tekið sinnaskiptum! 9 Látið ykkur ekki til hugar koma að þið getið sagt með sjálfum ykkur: Við eigum Abraham að föður. Ég segi ykkur að Guð getur vakið Abraham börn af steinum þessum. 10 Öxin er þegar lögð að rótum trjánna og hvert það tré, sem ber ekki góðan ávöxt, verður upp höggvið og því í eld kastað. 11 Ég skíri ykkur með vatni til þess að þið takið sinnaskiptum en sá sem kemur eftir mig er mér máttugri og er ég ekki verður að bera skó hans. Hann mun skíra ykkur með heilögum anda og eldi. 12 Hann er með varpskófluna í hendi sér og mun gjörhreinsa láfa sinn og safna hveiti sínu í hlöðu en hismið mun hann brenna í óslökkvanda eldi.“

Jesús skírður

13 Þá kom Jesús frá Galíleu að Jórdan til Jóhannesar að taka skírn hjá honum. 14 Jóhannes vildi varna honum þess og sagði: „Mér er þörf að skírast af þér og þú kemur til mín!“
15 Jesús svaraði honum: „Lát það nú eftir. Þannig ber okkur að fullnægja öllu réttlæti.“ Og Jóhannes lét það eftir honum.
16 En þegar Jesús hafði verið skírður sté hann jafnskjótt upp úr vatninu. Og þá opnuðust himnarnir og hann sá anda Guðs stíga niður eins og dúfu og koma yfir sig. 17 Og rödd kom af himnum: „Þessi er minn elskaði sonur sem ég hef velþóknun á.“