Síðustu plágurnar

1 Og ég sá annað tákn á himni, mikið og undursamlegt: Sjö engla sem höfðu sjö síðustu plágurnar því að með þeim lauk reiði Guðs.
2 Og ég leit sem glerhaf eldi blandið. Þeir sem höfðu unnið sigur á dýrinu og líkneski þess, og létu töluna sem táknar nafn þess ekki villa um fyrir sér, stóðu við glerhafið og héldu á hörpum Guðs. 3 Þeir sungu söng Móse, þjóns Guðs, og söng lambsins:
Mikil og dásamleg eru verk þín,
Drottinn Guð, þú alvaldi,
réttlátir og sannir eru vegir þínir,
þú konungur aldanna. [
4Hver skyldi ekki óttast þig, Drottinn, og vegsama nafn þitt?
Því að þú einn ert heilagur,
allar þjóðir munu koma og tilbiðja frammi fyrir þér
því að réttlátir dómar þínir eru opinberir orðnir.

5 Og eftir þetta sá ég að upp var lokið musteri Guðs á himni, vitnisburðartjaldbúðinni. 6 Englarnir sjö, sem höfðu plágurnar sjö, gengu þá út úr musterinu klæddir hreinu, skínandi líni og gyrtir gullbeltum um brjóst. 7 Og englunum sjö fékk ein af verunum fjórum sjö gullskálar, fullar reiði Guðs, hans sem lifir um aldir alda. 8 Og musterið fylltist af reyknum af dýrð Guðs og mætti hans og enginn mátti ganga inn í musterið uns plágurnar sjö, frá englunum sjö, væru hjá liðnar.