Ábyrgð valdhafa

1Heyrið, þér konungar, og skiljið.
Nemið, þér sem drottnið um víða veröld.
2 Hlýðið á, þér sem ríkið yfir mönnum,
þér sem hreykið yður af fjöld þegna yðar.
3 Drottinn hefur veitt yður valdið
og Hinn hæsti gefið yður ríkið.
Hann mun rannsaka verk yðar og grandskoða ráð yðar.
4 Þér eruð þjónar í ríki hans en hafið ekki drottnað réttlátlega.
Þér hafið ekki haldið lögmálið
og ekki breytt eftir vilja Guðs.
5 Óvænt og ógnandi mun hann standa andspænis yður.
Vægðarlaus dómur mun ganga yfir valdhafana.
6 Guð mun miskunna og fyrirgefa smælingjum
en voldugum verður vald hans óþyrmilegt.
7 Því að sá sem yfir öllum ríkir fer ekki í manngreinarálit
og er ófeiminn við steigurlæti.
Hann hefur sjálfur skapað háan og lágan
og elur jafnt önn fyrir öllum.
8 En hinna voldugu bíður ströng rannsókn.
9 Til yðar, þér einvaldar, beini ég nú máli mínu
svo að þér nemið speki og hrasið ekki.
10 Þeir sem halda heilagt lögmál Guðs munu heilagir verða,
þeim sem hafa numið það mun varnar auðið.
11 Verið því sólgnir í orð mín
og girnist þau og þér munuð fræðslu fá.

Gildi spekinnar

12Ljómandi er spekin og ófölnandi,
auðþekkt þeim sem elska hana
og auðfundin þeim er leita hennar.
13 Að fyrra bragði birtist hún þeim sem þrá hana.
14 Sá sem árla rís til að leita hennar þarf ekki að erfiða
því hann finnur hana sitjandi við dyrnar.
15 Það eitt að hugsa um hana eru fullkomin hyggindi.
Sá sem vakir hennar vegna verður skjótt áhyggjulaus.
16 Sjálf fer hún um og leitar þeirra sem eru hennar verðir.
Hún birtist þeim hliðholl hvar sem þeir fara
og kemur ætíð til móts við þá þegar þeir hugsa um hana.
17 Einlæg þrá eftir fræðslu er upphaf spekinnar.
18 Viðleitni til að fræðast er að elska hana.
Að elska hana er að halda boð hennar.
Að halda boð hennar tryggir ódauðleika.
19 Ódauðleikinn færir mann í nánd við Guð.
20 Þannig leiðir þrá eftir speki til konungdóms.
21 Fyrst þér einvaldar dáið hásæti og veldissprota
skuluð þér hafa spekina í hávegum, þá munuð þér ríkja um aldur.
22 Ég skal kunngjöra hvað spekin er og hvernig hún er til orðin
og eigi dylja neina leyndardóma fyrir yður
heldur rekja spor hennar frá upphafi sköpunar,
gera þekkingu á henni ljósa
og í engu hvika frá sannleikanum.
23 Ekki á ég samleið með tærandi öfundinni
því að hún á ekkert sameiginlegt með spekinni.
24 Nei, margir spekingar eru heiminum hjálpráð
og hygginn konungur er þjóðarheill.
25 Látið því fræðast af orðum mínum, það mun yður að gagni koma.