Einn er yðar meistari

1 Þá talaði Jesús til mannfjöldans og lærisveina sinna: 2 „Á stóli Móse sitja fræðimenn og farísear. 3 Því skuluð þér gera og halda allt sem þeir segja yður en eftir breytni þeirra skuluð þér ekki fara því þeir breyta ekki sem þeir bjóða. 4 Þeir binda þungar byrðar og leggja mönnum á herðar en sjálfir vilja þeir ekki snerta þær einum fingri. 5 Öll sín verk gera þeir til að sýnast fyrir mönnum, þeir breikka minnisborða sína og stækka skúfana. 6 Ljúft er þeim að skipa hefðarsæti í veislum og æðsta bekk í samkundum, 7 láta heilsa sér á torgum og kallast meistarar af mönnum. 8 En þér skuluð ekki láta kalla yður meistara því einn er yðar meistari og þér öll bræður og systur.[ 9 Þér skuluð ekki kalla neinn föður yðar á jörðu því einn er faðir yðar, sá sem er á himnum. 10 Þér skuluð ekki heldur láta kalla yður leiðtoga því einn er leiðtogi yðar, Kristur. 11 Sá mesti meðal yðar sé þjónn yðar. 12 Hver sem upp hefur sjálfan sig mun auðmýktur verða en sá sem lítillækkar sjálfan sig mun upp hafinn verða.

Blindir leiðtogar

13 Vei yður, fræðimenn og farísear, hræsnarar! Þér læsið himnaríki fyrir mönnum. Sjálfir gangið þér ekki þar inn og þeim sem inn vilja ganga leyfið þér eigi inn að komast.
[ 14 Vei yður, fræðimenn og farísear, hræsnarar! Þér flytjið langar bænir að yfirskini og hlunnfarið ekkjur og hafið af þeim heimili þeirra. Þér munuð fá því þyngri dóm.][
15 Vei yður, fræðimenn og farísear, hræsnarar! Þér farið um láð og lög til að snúa einum til yðar trúar og þegar það tekst gerið þér hann hálfu verra vítisbarn en þér sjálfir eruð.
16 Vei yður, blindir leiðtogar! Þér segið: Ef einhver sver við musterið þá er það ógilt en sverji menn við gullið í musterinu þá er það gildur eiður. 17 Blindu heimskingjar, hvort er meira gullið eða musterið sem helgar gullið? 18 Þér segið: Ef einhver sver við altarið þá er það ógilt en sverji menn við fórnina, sem á því er, þá er það gildur eiður. 19 Blindu menn, hvort er meira fórnin eða altarið sem helgar fórnina? 20 Sá sem sver við altarið sver við það og allt sem á því er. 21 Sá sem sver við musterið sver við það og við þann sem í því býr. 22 Og sá sem sver við himininn sver við hásæti Guðs og við þann sem í því situr.
23 Vei yður, fræðimenn og farísear, hræsnarar! Þér gjaldið tíund af myntu, anís og kúmeni en hirðið ekki um það sem mikilvægast er í lögmálinu, réttlæti, miskunn og trúfesti. Þetta ber að gera og hitt eigi ógert að láta. 24 Blindu leiðtogar, þér síið mýfluguna en svelgið úlfaldann!
25 Vei yður, fræðimenn og farísear, hræsnarar! Þér hreinsið bikarinn og diskinn utan en innan eru þeir fullir yfirgangs og óhófs. 26 Blindi farísei, hreinsaðu fyrst bikarinn innan svo að hann verði líka hreinn að utan.
27 Vei yður, fræðimenn og farísear, hræsnarar! Þér líkist hvítum kölkuðum gröfum sem sýnast fagrar utan en innan eru þær fullar af dauðra manna beinum og alls kyns óþverra. 28 Þannig eruð þér. Þér sýnist góðir fyrir sjónum manna en eruð að innan fullir hræsni og ranglætis.
29 Vei yður, fræðimenn og farísear, hræsnarar! Þér hlaðið upp grafir spámannanna og skreytið leiði réttlátra 30 og segið: Ef vér hefðum lifað á dögum feðra vorra hefðum vér ekki átt hlut með þeim í lífláti spámannanna. 31 Þannig vitnið þér það sjálfir að þér eruð afkomendur þeirra sem myrtu spámennina. 32 Nú skuluð þér fylla mæli feðra yðar. 33 Höggormar og nöðrukyn, hvernig fáið þér umflúið helvítisdóm? 34 Þess vegna sendi ég til yðar spámenn, spekinga og fræðimenn. Suma þeirra munuð þér lífláta og krossfesta, aðra húðstrýkja í samkundum yðar og ofsækja borg úr borg. 35 Þannig kemur yfir yður allt saklaust blóð sem úthellt hefur verið á jörðinni, frá blóði Abels hins réttláta til blóðs Sakaría Barakíasonar sem þér drápuð milli musterisins og altarisins. 36 Sannlega segi ég yður: Allt mun þetta lenda á þessari kynslóð.

Þér vilduð eigi

37 Jerúsalem, Jerúsalem! Þú sem líflætur spámennina og grýtir þá sem sendir eru til þín! Hversu oft vildi ég safna börnum þínum, eins og hænan safnar ungum sínum undir vængi sér, og þér vilduð eigi? 38 Guð mun yfirgefa musteri yðar og það verður lagt í rúst. 39 Ég segi yður: Héðan af munuð þér eigi sjá mig fyrr en þér segið: Blessaður sé sá sem kemur í nafni Drottins.“