Fyrir Pílatusi

1 Þá stóð upp allur skarinn og færði Jesú fyrir Pílatus. 2 Þeir tóku að ákæra hann og sögðu: „Við höfum komist að raun um að þessi maður leiðir þjóð okkar afvega, hann bannar að gjalda keisaranum skatt og segist sjálfur vera Kristur, konungur.“
3 Pílatus spurði hann þá: „Ert þú konungur Gyðinga?“
Jesús svaraði: „Það eru þín orð.“
4 Pílatus sagði við æðstu prestana og fólkið: „Enga sök finn ég hjá þessum manni.“
5 En þeir urðu því ákafari og sögðu: „Hann æsir upp lýðinn með því sem hann kennir í allri Júdeu, hann byrjaði í Galíleu og er nú kominn hingað.“

Fyrir Heródesi

6 Þegar Pílatus heyrði þetta spurði hann hvort maðurinn væri Galílei. 7 Og er hann varð þess vís að hann var úr umdæmi Heródesar sendi hann hann til Heródesar er þá var og í Jerúsalem á þeim dögum.
8 En Heródes varð næsta glaður er hann sá Jesú því hann hafði lengi langað að sjá hann þar eð hann hafði heyrt frá honum sagt. Vænti hann nú að sjá hann gera eitthvert tákn. 9 Hann spurði Jesú á marga vegu en hann svaraði honum engu. 10 Æðstu prestarnir og fræðimennirnir stóðu þar og ásökuðu hann harðlega. 11 En Heródes óvirti hann og spottaði ásamt hermönnum sínum, lagði yfir hann skínandi klæði og sendi hann aftur til Pílatusar. 12 Á þeim degi urðu þeir Heródes og Pílatus vinir en áður var fjandskapur með þeim.

Dæmdur til dauða

13 Pílatus kallaði nú saman æðstu prestana, höfðingjana og fólkið 14 og mælti: „Þið hafið fært mér þennan mann og sagt hann leiða fólkið afvega. Nú hef ég yfirheyrt manninn í ykkar viðurvist en enga þá sök fundið hjá honum er þið ákærið hann um. 15 Ekki heldur Heródes því hann sendi hann aftur til okkar. Ljóst er að hann hefur ekkert það drýgt er dauða sé vert. 16 Ætla ég því að hirta hann og láta lausan.“ [ 17 En skylt var honum að gefa þeim lausan einn bandingja á hverri hátíð.][
18 En þeir æptu allir: „Burt með hann, gefðu okkur Barabbas lausan!“ 19 En honum hafði verið varpað í fangelsi fyrir upphlaup nokkurt sem varð í borginni og manndráp.
20 Pílatus talaði enn til þeirra og vildi láta Jesú lausan. 21 En þeir æptu á móti: „Krossfestu, krossfestu hann!“
22 Í þriðja sinn sagði Pílatus við þá: „Hvað illt hefur þá þessi maður gert? Enga dauðasök hef ég fundið hjá honum. Ætla ég því að hirta hann og láta hann lausan.“
23 En þeir sóttu á með ópi miklu og heimtuðu að hann yrði krossfestur. Og þeir höfðu sitt fram.
24 Þá ákvað Pílatus að kröfu þeirra skyldi fullnægt. 25 Hann gaf lausan þann er þeir báðu um og varpað hafði verið í fangelsi fyrir upphlaup og manndráp en framseldi þeim Jesú að þeir færu með hann sem þeir vildu.

Krossfestur

26 Þegar þeir leiddu Jesú út tóku þeir Símon nokkurn frá Kýrene, er kom utan úr sveit, og lögðu krossinn á hann að hann bæri hann eftir Jesú.
27 En Jesú fylgdi mikill fjöldi fólks og kvenna er hörmuðu hann og grétu. 28 Jesús sneri sér að þeim og mælti: „Jerúsalemsdætur, grátið ekki yfir mér en grátið yfir sjálfum ykkur og börnum ykkar. 29 Því þeir dagar koma er menn munu segja: Sælar eru óbyrjur og þau móðurlíf er aldrei fæddu og þau brjóst sem engan nærðu. 30 Þá munu menn segja við fjöllin: Hrynjið yfir okkur! og við hálsana: Hyljið okkur! 31 Því að sé þetta gert við hið græna tré, hvað mun þá verða um hið visna?“
32 Með Jesú voru og færðir til lífláts aðrir tveir sem voru illvirkjar. 33 Og er þeir komu til þess staðar sem heitir Hauskúpa krossfestu þeir hann þar og illvirkjana, annan til hægri handar, hinn til vinstri. 34 Þá sagði Jesús: „Faðir, fyrirgef þeim því að þeir vita ekki hvað þeir gera.“[
En þeir köstuðu hlutum um klæði hans og skiptu með sér. 35 Fólkið stóð og horfði á og höfðingjarnir gerðu gys að honum og sögðu: „Öðrum bjargaði hann, bjargi hann nú sjálfum sér ef hann er Kristur Guðs, hinn útvaldi.“
36 Eins hæddu hann hermennirnir, komu og báru honum edik 37 og sögðu: „Ef þú ert konungur Gyðinga, þá bjargaðu sjálfum þér.“
38 Yfirskrift var yfir honum: ÞESSI ER KONUNGUR GYÐINGA.
39 Annar þeirra illvirkja sem krossfestir voru hæddi hann og sagði: „Ert þú ekki Kristur? Bjargaðu sjálfum þér og okkur!“
40 En hinn ávítaði hann og sagði: „Hræðist þú ekki einu sinni Guð og ert þó undir sama dómi? 41 Við erum það með réttu og fáum makleg gjöld fyrir gerðir okkar en þessi hefur ekkert illt aðhafst.“ 42 Þá sagði hann: „Jesús, minnst þú mín þegar þú kemur í ríki þitt!“
43 Og Jesús sagði við hann: „Sannlega segi ég þér: Í dag skaltu vera með mér í Paradís.“

Faðir, í þínar hendur

44 Og nú var nær hádegi[ og myrkur varð um allt land til nóns[ 45 því sólin missti birtu sinnar. En fortjald musterisins rifnaði sundur í miðju. 46 Þá kallaði Jesús hárri röddu: „Faðir, í þínar hendur fel ég anda minn!“ Og er hann hafði þetta mælt gaf hann upp andann.
47 Þegar hundraðshöfðinginn sá það er við bar vegsamaði hann Guð og sagði: „Sannarlega var þessi maður réttlátur.“
48 Og fólkið allt, sem komið hafði saman að horfa á, sá nú hvað gerðist og barði sér á brjóst og hvarf frá. 49 En vinir hans allir sem og konurnar, er fylgdu honum frá Galíleu, stóðu álengdar og horfðu á þetta.

Lagður í gröf

50 Maður er nefndur Jósef. Hann var ráðsherra, góður maður og réttvís 51 og hafði ekki samþykkt ráð þeirra né athæfi. Hann var frá Arímaþeu, borg í Júdeu, og vænti Guðs ríkis. 52 Hann gekk til Pílatusar og bað hann um líkama Jesú, 53 tók hann síðan ofan, sveipaði línklæði og lagði í gröf, höggna í klett, og hafði þar enginn verið áður lagður. 54 Það var aðfangadagur og hvíldardagurinn fór í hönd.
55 Konur þær er komið höfðu með Jesú frá Galíleu fylgdu eftir og sáu gröfina og hvernig líkami hans var lagður. 56 Þær sneru aftur og bjuggu ilmjurtir og smyrsl.
Hvíldardaginn héldu þær kyrru fyrir samkvæmt boðorðinu.