Loforð og heit

1 Móse skýrði Ísraelsmönnum frá þessu eins og Drottinn hafði boðið.
2 Móse talaði til leiðtoga ættbálka Ísraels og sagði: „Þetta er það sem Drottinn hefur boðið: 3 Nú vinnur maður Drottni heit eða skuldbindur sig með eiði að neita sér um eitthvað og skal hann ekki hvika frá loforði sínu, hann skal í einu og öllu standa við það sem hann sagði.
4 Vinni ung kona, sem er ógefin í föðurhúsum, Drottni heit eða skuldbindi sig með eiði að neita sér um eitthvað 5 og faðir hennar heyrir um heit hennar eða skuldbindingu og segir ekkert við hana, skulu öll heit hennar og allar skuldbindingar standa. 6 En komi faðir hennar með mótbárur gegn henni daginn sem hann heyrir um einhver heit hennar eða skuldbindingar standa þau ekki. Drottinn mun fyrirgefa henni því að faðir hennar kom með mótbárur gegn henni. 7 En verði hún gefin manni og heit hennar hvíla á henni eða hún hefur skuldbundið sig með gálausu tali 8 og maður hennar heyrir um það en segir ekkert við hana daginn, sem hann heyrir það, skulu heit hennar og skuldbindingar standa. 9 En komi maður hennar með mótbárur gegn henni daginn sem hann heyrir um þetta og hann rýfur heitið, sem hvílir á henni eða ómerkir gálausar skuldbindingar hennar, mun Drottinn fyrirgefa henni.
10 Heit ekkju eða fráskilinnar konu stendur, sem og allt annað sem hún hefur skuldbundið sjálfa sig með. 11 Hafi hún unnið heit í húsi manns síns eða skuldbundið sjálfa sig með eiði heima hjá manni sínum 12 og maður hennar heyrir um það en segir ekkert við hana eða kemur ekki með neinar mótbárur, skulu öll heit hennar og standa. 13 En ef hann rýfur þau daginn sem hann heyrir um þau stendur ekkert sem hún hefur sagt um heit sín eða skuldbindingu sjálfrar sín. Maður hennar hefur rofið þau og Drottinn mun fyrirgefa henni. 14 Maður hennar getur samþykkt eða rofið sérhvert heit hennar og sérhverja skuldbindingu. 15 Þegi maður hennar um þau dag eftir dag samþykkir hann öll heit hennar og skuldbindingar sem á henni hvíla. Hann hefur samþykkt þær því að hann þagði frá þeim degi er hann heyrði um þær. 16 Ef hann rýfur þær eftir að hafa heyrt um þær skal hann taka á sig sekt hennar.“
17 Þetta eru lagaákvæði sem Drottinn lagði fyrir Móse um samband eiginmanns og eiginkonu og milli föður og ógefinnar dóttur í föðurgarði.