Kveðja

1 Páll postuli – ekki sendur af mönnum né að tilhlutun manns heldur að tilhlutun Jesú Krists og Guðs föður sem uppvakti hann frá dauðum – 2 og allir trúaðir,[ sem með mér eru, heilsa söfnuðunum í Galatalandi.
3 Náð sé með yður og friður frá Guði föður og Drottni vorum Jesú Kristi 4 sem gaf sjálfan sig fyrir syndir okkar til þess að frelsa okkur frá hinni yfirstandandi vondu öld samkvæmt vilja Guðs vors og föður. 5 Honum sé dýrð um aldir alda. Amen.

Ekkert annað fagnaðarerindi

6 Mig furðar að þið svo fljótt látið snúast frá honum sem kallaði ykkur í náð Krists[ til annars konar fagnaðarerindis. 7 Það er þó ekkert fagnaðarerindi heldur eru einhverjir að trufla ykkur og vilja umhverfa fagnaðarerindinu um Krist. 8 En þótt jafnvel ég eða engill frá himni færi að boða ykkur annað fagnaðarerindi en það sem ég hef boðað ykkur, þá sé hann bölvaður. 9 Eins og ég hef áður sagt, eins segi ég nú aftur: Ef nokkur boðar ykkur annað fagnaðarerindi en það sem þið hafið numið þá sé hann bölvaður.
10 Er ég nú að reyna að sannfæra menn eða Guð? Er ég að leitast við að þóknast mönnum? Ef ég væri enn að þóknast mönnum þá væri ég ekki þjónn Krists.

Köllun Páls

11 Það læt ég ykkur vita, bræður mínir og systur,[ að fagnaðarerindið, sem ég hef boðað, er ekki mannaverk. 12 Ekki hef ég tekið við því af manni né látið kenna mér það heldur hefur Jesús Kristur opinberað mér það.
13 Þið hafið heyrt um hegðun mína áður fyrri í gyðingdóminum, hversu ákaflega ég ofsótti kirkju Guðs og vildi eyða henni. 14 Ég fór lengra í gyðingdóminum en margir jafnaldrar mínir meðal þjóðar minnar og var miklu vandlátari um erfikenningu forfeðra minna.
15 En þegar Guði, sem hafði útvalið mig frá móðurlífi og af náð sinni kallað, 16 þóknaðist að opinbera mér son sinn til þess að ég boðaði heiðingjunum fagnaðarerindið um hann, þá ráðgaðist ég ekki við neinn mann. 17 Ekki fór ég heldur upp til Jerúsalem til þeirra sem voru postular á undan mér, heldur fór ég jafnskjótt til Arabíu og sneri svo aftur til Damaskus.
18 Það var fyrst eftir þrjú ár að ég fór upp til Jerúsalem til að ráðgast við Kefas og dvaldist hjá honum hálfan mánuð. 19 Ég sá engan af hinum postulunum nema Jakob, bróður Drottins. 20 Guð veit að ég lýg því ekki sem ég skrifa ykkur.
21 Síðan kom ég í héruð Sýrlands og Kilikíu. 22 Kristnu söfnuðirnir í Júdeu þekktu mig ekki í sjón. 23 Þeir höfðu einungis heyrt sagt: „Sá sem áður ofsótti okkur boðar nú trúna sem hann áður vildi eyða.“ 24 Og þeir vegsömuðu Guð vegna mín.