Móse deyr

1 Síðan gekk Móse frá Móabssléttu og á Nebófjall, upp á Pisgatind gegnt Jeríkó, og Drottinn sýndi honum allt landið: Gíleað allt til Dan, 2 allt Naftalí, Efraímsland og Manasse, allt land Júda vestur að Miðjarðarhafi, 3 Negeb og Jórdanardalinn, dalinn við Jeríkó, pálmaborgina allt til Sóar. 4 Síðan sagði Drottinn við hann: „Þetta er landið sem ég hét Abraham, Ísak og Jakobi er ég sagði: Niðjum þínum gef ég það. Ég hef leyft þér að sjá það með eigin augum en þú munt ekki komast þangað yfir um.“
5 Móse, þjónn Drottins, andaðist þar í Móabslandi eins og Drottinn hafði sagt. 6 Hann gróf hann [ í dalnum í Móabslandi gegnt Bet Peór. Enginn veit enn þann dag í dag hvar gröf hans er. 7 Móse var hundrað og tuttugu ára þegar hann lést. Sjón hans hafði ekki daprast né heldur hafði þróttur hans þorrið.
8 Ísraelsmenn syrgðu Móse á Móabssléttu í þrjátíu daga. Þá lauk sorgartímanum eftir Móse.
9 Jósúa Núnsson var fullur vísdómsanda því að Móse hafði lagt hendur sínar yfir hann. Ísraelsmenn hlýddu honum og breyttu eftir því sem Drottinn hafði boðið Móse.
10 Annar eins spámaður og Móse kom aldrei aftur fram í Ísrael. Drottinn umgekkst hann augliti til auglitis. 11 Minnist táknanna og stórmerkjanna sem Drottinn sendi hann til að gera í Egyptalandi gegn faraó, hirðmönnum hans og öllu landi hans. 12 Hafið í huga allt sem hann vann með sinni sterku hendi, öll hin miklu og ógnvekjandi verk sem Móse vann í augsýn alls Ísraels.