Nýr himinn, ný jörð

1 Og ég sá nýjan himin og nýja jörð því að hinn fyrri himinn og hin fyrri jörð voru horfin og hafið var ekki framar til. 2 Og ég sá borgina helgu, nýja Jerúsalem, stíga niður af himni frá Guði, búna sem brúði er skartar fyrir manni sínum. 3 Og ég heyrði raust mikla frá hásætinu er sagði: „Sjá, tjaldbúð Guðs er meðal mannanna og hann mun búa hjá þeim og þeir munu vera fólk hans og Guð sjálfur mun vera hjá þeim, Guð þeirra. 4 Og hann mun þerra hvert tár af augum þeirra. Og dauðinn mun ekki framar til vera, hvorki harmur né vein né kvöl er framar til. Hið fyrra er farið.“
5 Sá sem í hásætinu sat sagði: „Sjá, ég geri alla hluti nýja,“ og hann segir: „Rita þú, því að þetta eru orðin trúu og sönnu.“ 6 Og hann sagði við mig: „Það er fram komið. Ég er Alfa og Ómega,[ upphafið og endirinn. Ég mun gefa þeim ókeypis, sem þyrstur er, af lind lífsins vatns. 7 Sá er sigrar mun erfa þetta og ég mun vera hans Guð og hann mun vera mitt barn. 8 En staður er búinn í díkinu sem logar af eldi og brennisteini hugdeigum og vantrúuðum, viðurstyggilegum og manndrápurum, frillulífismönnum og töframönnum, skurðgoðadýrkendum og öllum lygurum. Það er hinn annar dauði.“

Ný Jerúsalem

9 Nú kom einn af englunum sjö, sem héldu á skálunum sjö, sem fullar voru af síðustu plágunum sjö, og talaði við mig og sagði: „Kom hingað og ég mun sýna þér brúðina, eiginkonu lambsins.“ 10 Og hann flutti mig í anda upp á mikið og hátt fjall og sýndi mér borgina helgu, Jerúsalem, sem steig niður af himni frá Guði. 11 Hún hafði dýrð Guðs. Ljómi hennar var líkur dýrasta steini, sem jaspissteinn kristalskær. 12 Hún hafði mikinn og háan múr og tólf hlið og við hliðin stóðu tólf englar og nöfn þeirra tólf kynkvísla Ísraelsmanna voru rituð á hliðin tólf. 13 Móti austri voru þrjú hlið, móti norðri þrjú hlið, móti suðri þrjú hlið og móti vestri þrjú hlið. 14 Og múr borgarinnar hafði tólf undirstöðusteina og á þeim nöfn hinna tólf postula lambsins.
15 Og sá sem við mig talaði hélt á gullkvarða til að mæla borgina, hlið hennar og múr. 16 Borgin liggur í ferhyrning, jöfn á lengd og breidd. Og hann mældi borgina með kvarðanum og var hún tólf þúsund skeið. Lengd hennar og breidd og hæð voru jafnar. 17 Og hann mældi múr hennar. Eftir kvarða manns, sem engillinn notaði líka, var hann hundrað fjörutíu og fjórar álnir. 18 Múr hennar var byggður af jaspis og borgin af skíra gulli, sem skært gler væri. 19 Undirstöðusteinar borgarmúrsins voru skreyttir alls konar gimsteinum. Fyrsti undirstöðusteinninn var jaspis, annar safír, þriðji kalsedón, fjórði smaragður, 20 fimmti sardónyx, sjötti sardis, sjöundi krýsólít, áttundi beryll, níundi tópas, tíundi krýsópras, ellefti hýasint, tólfti ametýst. 21 Og hliðin tólf voru tólf perlur og hvert hlið úr einni perlu. Og stræti borgarinnar var af skíru gulli, sem gagnsætt gler.
22 Ég sá ekki musteri í henni því að Drottinn Guð, hinn alvaldi, er musteri hennar og lambið. 23 Og borgin þarf hvorki sólar við né tungls til að lýsa sér því að dýrð Guðs skín á hana og lambið er lampi hennar. 24 Og þjóðirnar munu ganga í ljósi hennar og konungar jarðarinnar færa henni auðæfi sín. 25 Hliðum hennar verður ekki lokað um daga því að þar mun aldrei koma nótt. 26 Dýrð og vegsemd þjóðanna mun flytjast þangað. 27 Ekkert óhreint, enginn sem fremur viðurstyggð eða fer með lygi mun koma þangað inn heldur þeir einir sem ritaðir eru í lífsins bók, bók lambsins.