1 En Drottinn svaraði Móse: „Nú færðu að sjá hvað ég ætla að gera faraó því að neyddur af máttugri hendi lætur hann þá lausa, neyddur af máttugri hendi rekur hann þá úr landi sínu.“

Önnur frásögn af köllun Móse

2 Guð ávarpaði Móse og sagði við hann: „Ég er Drottinn. 3 Ég birtist Abraham, Ísak og Jakobi sem almáttugur Guð [ en undir nafninu Drottinn [ opinberaði ég mig ekki. 4 Ég gerði einnig við þá þann sáttmála að gefa þeim Kanaansland, landið sem þeir dvöldust í sem aðkomumenn. 5 Ég heyrði kvein Ísraelsmanna sem Egyptar gerðu að þrælum og minntist sáttmála míns. 6 Segðu því við Ísraelsmenn: Ég er Drottinn. Ég ætla að leiða ykkur úr kvaðavinnunni hjá Egyptum og bjarga ykkur úr þrældómnum. Ég ætla að frelsa ykkur með útréttum armi og þungum refsidómum. 7 Ég ætla að taka ykkur að mér sem þjóð og verða Guð ykkar. Þið munuð komast að raun um að ég er Drottinn, Guð ykkar, sem leiðir ykkur úr ánauð Egypta. 8 Ég ætla að leiða ykkur til landsins sem ég sór að gefa Abraham, Ísak og Jakobi. Ég ætla að fá ykkur það til eignar, ég, Drottinn.“
9 Móse sagði Ísraelsmönnum frá þessu en þeir hlustuðu ekki á hann af því að þeir voru kjarklausir og bugaðir af þrældómi. 10 Þá ávarpaði Drottinn Móse og sagði: 11 „Farðu og segðu faraó, Egyptalandskonungi, að hann eigi að sleppa Ísraelsmönnum úr landi sínu.“ 12 Móse talaði fyrir augliti Drottins og sagði: „Ísraelsmenn hlustuðu ekki á mig, hvers vegna ætti faraó að hlusta á mig svo málstirður sem ég er?“ [ 13 Þá talaði Drottinn við Móse og Aron og gaf þeim fyrirmæli um að fara til Ísraelsmanna og faraós, Egyptalandskonungs, til að Ísraelsmenn yrðu leiddir út úr Egyptalandi.

Ættartala Móse og Arons

14 Þessir eru ættarhöfðingjar: Synir Rúbens, frumburðar Ísraels, voru Hanok, Pallú, Hesrón og Karmí; þetta eru ættir Rúbens.
15 Synir Símeons voru Jemúel, Jamín, Óhad, Jakín, Sóhar og Sál sem var sonur kanverskrar konu; þetta eru ættir Símeons.
16 Þetta eru nöfn sona Leví samkvæmt ættartölum þeirra: Gerson, Kahat og Merarí. Leví varð hundrað þrjátíu og sjö ára.
17 Synir Gersons voru Líbní og Símeí eftir ættum þeirra. 18 Synir Kahats voru Amram, Jísehar, Hebron og Ússíel. Kahat varð hundrað þrjátíu og þriggja ára.
19 Synir Merarí voru Mahelí og Músí. Þetta eru ættir Leví eftir ættartölum þeirra.
20 Amram tók sér Jókebed, föðursystur sína, fyrir eiginkonu. Hún ól honum Aron og Móse. Amram varð hundrað þrjátíu og sjö ára. 21 Synir Jísehars voru Kóra, Nefeg og Síkrí. 22 Synir Ússíels voru Mísael, Elsafan og Síkrí.
23 Aron tók sér Elísebu, dóttur Ammínadabs, systur Nahsons, fyrir eiginkonu. Hún ól honum Nadab, Abíhú, Eleasar og Ítamar. 24 Synir Kóra voru Assír, Elkana og Abíasaf. Þetta eru ættir Kóraíta.
25 Eleasar, sonur Arons, tók sér eina af dætrum Pútíels fyrir eiginkonu. Hún ól honum Pínehas.
Þetta eru ættarhöfðingjar Levíta eftir ættum þeirra.

Aron spámaður Móse

26 Það voru Aron og Móse sem Drottinn sagði við: „Leiðið Ísraelsmenn út úr Egyptalandi fylktu liði.“ 27 Það voru þeir sem töluðu við faraó, Egyptalandskonung, um að leiða Ísraelsmenn út úr Egyptalandi; það voru þeir Móse og Aron.
28 Þegar Drottinn ávarpaði Móse í Egyptalandi 29 sagði hann: „Ég er Drottinn. Segðu faraó, Egyptalandskonungi, allt sem ég segi við þig.“ 30 Móse svaraði frammi fyrir augliti Drottins: „Ég er maður málstirður. Hvers vegna ætti faraó að hlusta á mig?“