1 Þið sem eigið þræla, veitið þeim það sem rétt er og sanngjarnt og vitið að einnig þið eigið Drottin á himni.

Fyrirmæli

2 Verið stöðug í bæninni, vakið og biðjið með þakkargjörð. 3 Biðjið jafnframt fyrir mér að Guð opni mér dyr fyrir orðið og ég geti boðað leyndardóm Krists. Hans vegna er ég nú í böndum. 4 Biðjið að ég megi birta hann eins og mér ber að tala.
5 Umgangist þá viturlega sem fyrir utan eru og notið hverja stund. 6 Mál ykkar sé ætíð ljúflegt en salti kryddað til þess að þið vitið hvernig þið eigið að svara hverjum manni.

Kveðjur

7 Týkíkus, minn elskaði bróðir og trúi aðstoðarmaður og samverkamaður í þjónustu Drottins, mun láta ykkur vita allt um mína hagi. 8 Ég sendi hann til ykkar gagngert til þess að þið fáið að vita hvernig mér líður og til þess að hann uppörvi ykkur. 9 Með honum fer Onesímus, minn trúi og elskaði bróðir, sem er einn úr ykkar hópi. Þeir munu láta ykkur vita allt sem hér gerist.
10 Aristarkus, sambandingi minn, biður að heilsa ykkur. Svo og Markús, frændi Barnabasar, sem þið hafið fengið orð um. Ef hann kemur til ykkar þá takið vel á móti honum. 11 Enn fremur biður Jesús, að viðurnefni Jústus, að heilsa ykkur. Þeir eru nú sem stendur einu umskornu samverkamenn mínir í þjónustu við Guðs ríki og hafa þeir verið mér styrkur.
12 Einnig biður Epafras að heilsa ykkur, sem er einn úr ykkar hópi. Hann er þjónn Krists Jesú og berst jafnan fyrir ykkur í bænum sínum til þess að þið megið standa stöðug, fullkomin og fullviss í öllu því sem Guð vill. 13 Þann vitnisburð gef ég honum að hann leggur mikið á sig fyrir ykkur og þau sem eru í Laódíkeu og í Híerapólis. 14 Þá biður hann Lúkas að heilsa ykkur, læknirinn elskaði, og Demas.
15 Berið kveðju söfnuðinum í Laódíkeu. Einnig Nýmfu og söfnuðinum sem kemur saman í húsi hennar.[ 16 Þegar búið er að lesa þetta bréf upp hjá ykkur, þá látið líka lesa það í söfnuði Laódíkeumanna. Lesið og bréfið frá Laódíkeu. 17 Segið Arkippusi: „Gættu þjónustunnar, sem Drottinn fól þér, og ræktu hana vel.“
18 Kveðjan er skrifuð með minni, Páls, eigin hendi. Minnist fjötra minna. Náð sé með yður!