Fyrsta fórn Arons

1 Á áttunda degi kallaði Móse saman Aron og syni hans ásamt öldungum Ísraels 2 og sagði við Aron: „Sæktu nautkálf í syndafórn og hrút í brennifórn, lýtalaus dýr, og færðu þau fram fyrir auglit Drottins. 3 Því næst skaltu ávarpa Ísraelsmenn og segja: Sækið geithafur í syndafórn, kálf og sauðkind í brennifórn, bæði veturgömul og lýtalaus, 4 naut og hrút í heillafórn, sem slátra skal frammi fyrir augliti Drottins, og kornfórn blandaða olíu því að Drottinn mun birtast ykkur í dag.“
5 Þeir komu með það sem Móse hafði boðið fram fyrir samfundatjaldið. Þá kom allur söfnuðurinn og gekk fram fyrir auglit Drottins.
6 Móse sagði: „Þetta er það sem Drottinn hefur boðið ykkur að gera, gerið það og dýrð Drottins mun birtast ykkur.“
7 Þá sagði Móse við Aron: „Gakktu að altarinu og færðu syndafórn þína og brennifórn og friðþægðu fyrir þig og ætt þína. Færðu síðan fram gjöf þjóðarinnar og friðþægðu fyrir hana eins og Drottinn hefur boðið.“
8 Aron gekk þá að altarinu og slátraði syndafórnarkálfinum sem honum var ætlaður. 9 Synir Arons færðu honum blóðið. Hann dýfði fingri í blóðið og rauð því á horn altarisins en öllu sem eftir var af blóðinu hellti hann á fótstall altarisins.
10 Mörinn, nýrun og lifrarblaðið úr syndafórnardýrinu lét hann líða upp í reyk af altarinu eins og Drottinn hafði boðið Móse. 11 Kjötið og húðina brenndi hann í eldi fyrir utan herbúðirnar.
12 Því næst slátraði hann brennifórnardýrinu. Synir Arons réttu honum blóðið og hann stökkti því á allar hliðar altarisins.
13 Síðan réttu þeir honum brennifórnina í stykkjum ásamt höfðinu og hann lét hana líða upp í reyk af altarinu. 14 Hann þvoði innyflin og fæturna og lét það líða upp í reyk af altarinu ásamt brennifórninni.
15 Þá færði hann fram gjöf þjóðarinnar. Hann sótti geithafurinn sem átti að verða syndafórn fólksins, slátraði honum og færði hann í syndafórn eins og þann fyrri. 16 Hann færði brennifórnina samkvæmt reglunum. 17 Hann færði einnig kornfórnina, tók handfylli af henni og lét hana líða upp í reyk af altarinu, og morgunbrennifórn að auki.
18 Síðan slátraði hann nautinu og hrútnum í heillafórn fyrir þjóðina. Synir Arons réttu honum blóðið og hann stökkti því á allar hliðar altarisins.
19 Þeir réttu honum einnig mörinn úr nautinu og hrútnum, rófuna, netjuna sem hylur innyflin, nýrun og lifrarblaðið. 20 Þeir lögðu mörinn ofan á bringurnar og Aron lét mörinn líða upp í reyk af altarinu. 21 Því næst veifaði Aron bringunum og hægra lærinu fram og aftur frammi fyrir augliti Drottins eins og Móse hafði boðið.
22 Síðan hóf Aron upp hendur sínar yfir fólkið og blessaði það. Hann gekk niður frá altarinu eftir að hafa fært syndafórn, brennifórn og heillafórn. 23 Þá gengu Móse og Aron inn í samfundatjaldið. Þegar þeir komu út aftur blessuðu þeir fólkið. Þá birtist dýrð Drottins allri þjóðinni 24 og eldtungur loguðu út frá Drottni og gleyptu brennifórnina, heillafórnina og mörinn á altarinu. Þegar fólkið sá það hóf það upp fagnaðaróp og féll fram á ásjónur sínar.