Til Sardes

1 Engli safnaðarins í Sardes skaltu rita:
Þetta segir sá sem hefur þá sjö anda Guðs, stjörnurnar sjö. Ég þekki verkin þín. Þú lifir að nafninu til en ert samt dauður. 2 Vakna þú og styrk það sem eftir er og að dauða komið. Því margt hef ég fundið í fari þínu sem ekki stenst fyrir Guði mínum. 3 Minnst þú þess sem þú hefur numið og heyrt og varðveit það og bæt ráð þitt. Ef þú vakir ekki mun ég koma eins og þjófur og þú munt alls ekki vita á hverri stundu ég kem yfir þig. 4 En þú átt fáein nöfn í Sardes sem ekki hafa saurgað klæði sín og þau munu ganga með mér í hvítum klæðum því að þau eru makleg. 5 Sá er sigrar skal þá skrýðast hvítum klæðum og eigi mun ég afmá nafn hans úr bók lífsins. Ég mun kannast við nafn hans frammi fyrir föður mínum og englum hans.
6 Hver sem eyra hefur hann heyri hvað andinn segir söfnuðunum.

Til Fíladelfíu

7 Engli safnaðarins í Fíladelfíu skaltu rita:
Þetta segir sá heilagi, sá sanni sem hefur lykil Davíðs, hann sem lýkur upp svo að enginn læsir og læsir svo að enginn lýkur upp. 8 Ég þekki verkin þín. Ég hef látið dyr standa opnar fyrir þér sem enginn getur lokað. Þú hefur lítinn mátt en hefur þó varðveitt orð mitt og ekki afneitað mér. 9 Ég skal láta lygarana af samkundu Satans, sem segjast vera Gyðingar en eru það ekki, koma og kasta sér fyrir fætur þér og láta þá vita að ég elska þig. 10 Af því að þú hefur varðveitt orð mitt um þolgæði mun ég varðveita þig á þeirri reynslustund sem á að koma yfir alla heimsbyggðina til að reyna þau sem á jörðinni búa. 11 Ég kem skjótt. Haltu fast því sem þú hefur til þess að enginn taki kórónu þína. 12 Þann er sigrar mun ég gera að máttarstólpa í musteri Guðs míns og hann skal aldrei framar fara þaðan. Á hann mun ég rita nafn Guðs míns og nafn borgar Guðs míns, hinnar nýju Jerúsalem, er kemur af himni ofan frá Guði mínum, og nafnið mitt hið nýja.
13 Hver sem eyra hefur hann heyri hvað andinn segir söfnuðunum.

Til Laódíkeu

14 Engli safnaðarins í Laódíkeu skaltu rita:
Þetta segir hann sem er amen, votturinn trúi og sanni, upphaf sköpunar Guðs. 15 Ég þekki verkin þín, þú ert hvorki kaldur né heitur. Betur að þú værir annaðhvort kaldur eða heitur. 16 En af því að þú ert hálfvolgur og hvorki heitur né kaldur mun ég skyrpa þér út af munni mínum. 17 Þú segir: „Ég er ríkur og orðinn auðugur og þarfnast einskis.“ Þú veist ekki að þú ert vesalingur og aumingi, fátækur, blindur og nakinn. 18 Ég ræð þér að þú kaupir af mér gull, skírt í eldi, til þess að þú verðir auðugur, og hvít klæði til þess að þú getir hulið skammarlega nekt þína. Kauptu líka smyrsl á augu þín til þess að þú getir séð. 19 Ég tyfta og aga alla þá sem ég elska. Legg þú því allt kapp á að bæta ráð þitt. 20 Ég stend við dyrnar og kný á. Ef einhver heyrir raust mína og lýkur upp dyrunum mun ég fara inn til hans og neyta kvöldverðar með honum og hann með mér. 21 Þann er sigrar mun ég láta sitja hjá mér í hásæti mínu eins og ég sjálfur sigraði og settist hjá föður mínum í hásæti hans.
22 Hver sem eyra hefur hann heyri hvað andinn segir söfnuðunum.