1 Til stjórnandans. Til þjóns Drottins. Eftir Davíð sem flutti Drottni þetta ljóð þegar Drottinn hafði bjargað honum úr greipum allra fjandmanna hans og úr greipum Sáls. 2 Hann sagði:
Ég elska þig, Drottinn, styrkur minn.
3Drottinn, bjarg mitt og vígi, frelsari minn,
Guð minn, hellubjarg mitt, þar sem ég leita hælis,
skjöldur minn og horn hjálpræðis míns, háborg mín.
4Lofaður sé Drottinn, hrópa ég
og bjargast frá fjandmönnum mínum.
5Dauðans bönd héldu mér,
eyðandi fljót skelfdu mig.
6Fjötrar heljar herptust að mér,
snörur dauðans ógnuðu mér.
7Í angist minni kallaði ég á Drottin,
til Guðs míns hrópaði ég.
Hann heyrði hróp mitt í helgidómi sínum,
óp mitt náði eyrum hans.
8Þá skalf jörðin og nötraði,
undirstöður fjallanna bifuðust,
þær skulfu því að hann var reiður.
9Reyk lagði úr nösum hans,
eyðandi eld úr munni hans,
eldslogar gengu út frá honum.
10Hann sveigði himininn, steig ofan
og skýsorti var undir fótum hans.
11Hann steig á bak kerúb og flaug af stað,
sveif á vængjum vindsins.
12Hann sveipaði sig myrkri,
regnskýjum og skýsorta eins og tjaldi.
13Frá ljómanum fyrir honum komu ský
með hagli og eldglæringum.
14Þá þrumaði Drottinn á himni,
Hinn hæsti lét raust sína gjalla
gegnum hagl og eldglæringar.
15Hann skaut örvum langt og víða,
slöngvaði eldingum og tvístraði þeim.
16Þá sá í mararbotn,
undirstöður jarðar birtust
þegar þú ógnaðir í reiði þinni, Drottinn,
og blést úr nösum þínum.
17Hann rétti út hönd sína frá himni og greip mig,
dró mig upp úr vötnunum djúpu,
18bjargaði mér undan hinum öfluga fjandmanni,
undan hatursmönnum mínum
sem voru mér máttugri.
19Þeir réðust á mig á óheilladegi mínum
en Drottinn reyndist mér stoð.
20Hann leiddi mig út á víðlendi,
leysti mig úr áþján af því að hann hefur mætur á mér.
21Drottinn launaði mér réttlæti mitt,
endurgalt mér hreinleika handa minna
22 því að ég vék ekki af vegi Drottins
og brást ekki Guði mínum.
23 Þar sem öll boð hans voru mér fyrir augum
og ég hafnaði ekki lögum hans
24 var ég flekklaus frammi fyrir honum.
Ég varaðist að syndga;
25 þess vegna launaði Drottinn mér réttlæti mitt,
hreinleika handa minna fyrir augum hans.
26 Þú ert trúföstum trúfastur,
ráðvöndum ráðvandur,
27 einlægum einlægur
en andsnúinn svikurum.
28 Þú frelsar undirokaða
en gerir hrokafulla niðurlúta.
29 Þú, Drottinn, lætur lampa minn skína,
Guð minn, lýsir upp myrkur mitt.
30 Með þinni hjálp brýt ég borgarveggi,
með Guði mínum stekk ég yfir múra.
31 Vegur Guðs er lýtalaus,
orð Drottins er hreint,
skjöldur er hann öllum sem leita hælis hjá honum.
32 Hver er Guð nema Drottinn?
Hver er bjarg nema Guð vor?
33 Guð gyrðir mig styrkleika,
gerir veg minn greiðan,
34 fætur mína fráa sem hindar
og veitir mér fótfestu á hæðunum.
35 Hann þjálfar hendur mínar til hernaðar,
arma mína til að spenna eirbogann.
36 Þú gafst mér hjálp þína að skildi
og hægri hönd þín studdi mig;
þú beygðir þig og lyftir mér upp.
37 Þú rýmdir til fyrir skrefum mínum
og ökklar mínir riðuðu ekki.
38 Ég elti fjandmenn mína og náði þeim
og sneri ekki aftur fyrr en ég hafði eytt þeim.
39 Ég molaði þá sundur, þeir gátu ekki staðið upp,
lágu undir fótum mínum.
40 Þú gyrtir mig styrkleika til stríðsins,
beygðir fjandmenn mína undir mig.
41 Þú hraktir fjendur mína á flótta,
ég eyddi hatursmönnum mínum.
42 Þeir hrópuðu en enginn kom til hjálpar,
hrópuðu til Drottins en hann svaraði ekki.
43 Ég muldi þá, þeir urðu sem ryk í vindi,
tróð þá fótum sem skarn á stræti.
44 Þú bjargaðir mér úr átökum þjóðar minnar,
gerðir mig að leiðtoga þjóðanna.
Þjóðir, sem ég þekkti ekki, þjónuðu mér,
45 hlýddu mér óðar en þær heyrðu mín getið.
Framandi menn skriðu fyrir mér,
46 útlendingar gáfust upp,
komu skjálfandi úr fylgsnum sínum.
47 Drottinn lifir. Lofað sé bjarg mitt,
hátt upp hafinn sé Guð hjálpræðis míns.
48 Það er Guð sem lætur mig ná hefndum,
leggur þjóðir undir mig
49 og bjargar mér undan óvinum mínum.
Þú hefur mig yfir andstæðinga mína
og frelsar mig frá ofbeldismönnum.
50 Þess vegna vegsama ég þig meðal þjóðanna, Drottinn,
syng nafni þínu lof.
51 Hann veitir konungi sínum mikla sigra
og auðsýnir sínum smurða trúfesti,
Davíð og niðjum hans að eilífu.