Varað við hræsni

1 Fólk hafði nú flykkst að í tugum þúsunda svo að nærri tróð hver annan undir.
Jesús tók þá að tala, fyrst til lærisveina sinna: „Varist súrdeig farísea sem er hræsnin. 2 Ekkert er hulið sem eigi verður opinbert né leynt er eigi verður kunnugt. 3 Því mun allt það sem þér hafið talað í myrkri heyrast í birtu, og það sem þér hafið hvíslað í herbergjum mun kunngjört á þökum uppi.

Hvern ber að hræðast?

4 Það segi ég yður, vinir mínir: Hræðist ekki þá sem líkamann deyða og fá að því búnu ekki meira að gert. 5 Ég skal sýna yður hvern þér eigið að hræðast. Hræðist þann er hefur vald að deyða og að því búnu varpa í helvíti. Já, ég segi yður, hræðist hann.
6 Eru ekki fimm spörvar seldir fyrir tvo smápeninga? Og þó gleymir Guð engum þeirra. 7 Hárin á höfði yðar eru jafnvel öll talin. Óttist ekki, þér eruð meira verðir en margir spörvar.

Að kannast við Krist fyrir mönnum

8 En ég segi yður: Hvern þann sem kannast við mig fyrir mönnum mun og Mannssonurinn kannast við fyrir englum Guðs. 9 En þeim sem afneitar mér fyrir mönnum mun Mannssonurinn afneita fyrir englum Guðs.
10 Hverjum sem mælir gegn Mannssyninum verður það fyrirgefið en þeim sem lastmælir gegn heilögum anda verður ekki fyrirgefið.
11 Og þegar þeir leiða yður fyrir samkundur, höfðingja og yfirvöld, hafið þá ekki áhyggjur af því hvernig eða með hverju þér eigið að verja yður eða hvað þér eigið að segja. 12 Því að heilagur andi mun kenna yður á þeirri stundu hvað segja ber.“

Ríki bóndinn

13 Einn úr mannfjöldanum sagði við Jesú: „Meistari, seg þú bróður mínum að skipta með mér arfinum.“
14 Hann svaraði honum: „Maður, hver hefur sett mig dómara eða skiptaráðanda yfir ykkur?“ 15 Og hann sagði við þá: „Gætið ykkar og varist alla ágirnd. Enginn þiggur líf af eigum sínum þótt auðugur sé.“
16 Þá sagði Jesús þeim dæmisögu þessa: „Maður nokkur ríkur átti land er hafði borið mikinn ávöxt. 17 Hann hugsaði með sér: Hvað á ég að gera? Nú get ég hvergi komið fyrir afurðum mínum. 18 Og hann sagði: Þetta geri ég: Ég ríf hlöður mínar og reisi aðrar stærri og þangað safna ég öllu korni mínu og auðæfum. 19 Og ég segi við sálu mína: Sála mín, nú átt þú mikinn auð til margra ára, hvíl þig nú, et og drekk og ver glöð.
20 En Guð sagði við hann: Heimskingi, á þessari nóttu verður sál þín af þér heimtuð og hver fær þá það sem þú hefur aflað? 21 Svo fer þeim er safnar sér fé en er ekki ríkur í augum Guðs.“

Ekki áhyggjufullir

22 Og Jesús sagði við lærisveina sína: „Því segi ég yður: Verið ekki áhyggjufullir um líf yðar, hvað þér eigið að eta, né heldur um líkama yðar, hverju þér eigið að klæðast. 23 Lífið er meira en fæðan og líkaminn meira en klæðin. 24 Hyggið að hröfnunum. Hvorki sá þeir né uppskera, eigi hafa þeir forðabúr eða hlöðu og Guð fæðir þá. Hve miklum mun eruð þér fremri fuglunum! 25 Og hver yðar getur með áhyggjum aukið spönn við aldur sinn?[ 26 Fyrst þér nú orkið ekki svo litlu, hví látið þér allt hitt valda yður áhyggjum? 27 Hyggið að liljunum, hversu þær vaxa. Hvorki vinna þær né spinna. En ég segi yður: Jafnvel Salómon í allri sinni dýrð var ekki svo búinn sem ein þeirra.
28 Fyrst Guð skrýðir svo grasið á vellinum sem í dag stendur en á morgun verður í ofn kastað, hve miklu fremur mun hann þá klæða yður, þér trúlitlir!
29 Hafið ekki hugann við hvað þér eigið að eta og hvað að drekka, og kvíðið engu. 30 Allt þetta stunda heiðingjar heimsins en faðir yðar veit að þér þarfnist þessa. 31 Leitið heldur ríkis hans og þá mun þetta veitast yður að auki.

Fjársjóður sem fyrnist ekki

32 Vertu ekki hrædd, litla hjörð, því að föður yðar hefur þóknast að gefa yður ríkið. 33 Seljið eigur yðar og gefið ölmusu, fáið yður pyngjur er slitna ekki, fjársjóð á himnum er þrýtur ekki, þar sem þjófur fær eigi í nánd komist né mölur spillt. 34 Því hvar sem fjársjóður yðar er, þar mun og hjarta yðar vera.

Verið viðbúnir

35 Verið vel tygjaðir[ og látið ljós yðar loga 36 og verið líkir þjónum er bíða þess að húsbóndi þeirra komi úr brúðkaupi og þeir geti lokið upp fyrir honum um leið og hann kemur og knýr dyra. 37 Sælir eru þeir þjónar sem húsbóndinn finnur vakandi er hann kemur. Sannlega segi ég yður, hann mun búa sig,[ láta þá setjast að borði og koma og þjóna þeim. 38 Og komi hann um miðnætti eða síðar[ og finni þá vakandi, sælir eru þeir þá. 39 Það skiljið þér að húsráðandi léti ekki brjótast inn í hús sitt ef hann vissi á hvaða stundu þjófurinn kæmi. 40 Verið þér og viðbúnir því að Mannssonurinn kemur á þeirri stundu sem þér ætlið eigi.“
41 Þá spurði Pétur: „Drottinn, mælir þú þessa líkingu til okkar eða til allra?“
42 Drottinn mælti: „Hver er sá trúi og hyggni ráðsmaður sem húsbóndinn setur yfir hjú sín að gefa þeim skammtinn á réttum tíma? 43 Sæll er sá þjónn er húsbóndinn finnur breyta svo er hann kemur. 44 Ég segi yður með sanni: Hann mun setja hann yfir allar eigur sínar. 45 En ef sá þjónn segir í hjarta sínu: Það dregst að húsbóndi minn komi, og tekur að berja þjóna og þernur, eta og drekka og verða ölvaður, 46 þá mun húsbóndi þess þjóns koma á þeim degi er hann væntir ekki, á þeirri stundu er hann veit ekki, höggva hann og láta hann fá hlut með ótrúum.
47 Sá þjónn sem veit vilja húsbónda síns og hirðir ekki um að hlýða honum mun barinn mörg högg. 48 En hinn sem veit ekki hvað húsbóndi hans vill en vinnur til refsingar mun barinn fá högg. Hver sem mikið er gefið verður mikils krafinn og af þeim verður meira heimtað sem meira er léð.

Eldur á jörðu

49 Ég er kominn að varpa eldi á jörðu. Hversu vildi ég að hann væri þegar kveiktur! 50 Skírn á ég að skírast. Hversu þungt er mér uns hún er fullnuð.
51 Ætlið þér að ég sé kominn að færa frið á jörðu? Nei, segi ég yður, heldur sundurþykki. 52 Upp frá þessu verða fimm í sama húsi sundurþykkir, þrír við tvo og tveir við þrjá, 53 faðir við son og sonur við föður, móðir við dóttur og dóttir við móður, tengdamóðir við tengdadóttur sína og tengdadóttir við tengdamóður.“

Tákn tímanna

54 Jesús sagði og við fólkið: „Þá er þér sjáið ský draga upp í vestri segið þér jafnskjótt: Nú fer að rigna. Og svo verður. 55 Og þegar vindur blæs af suðri segið þér: Nú kemur hiti. Og svo fer. 56 Hræsnarar, útlit lofts og jarðar kunnið þér að ráða. Hvers vegna kunnið þér ekki að meta það sem nú er að gerast?
57 Hví dæmið þér ekki af sjálfum yður hvað rétt sé? 58 Þegar þú ferð með andstæðingi þínum fyrir yfirvald þá kostaðu kapps um það á leiðinni að ná sáttum við hann til þess að hann dragi þig ekki fyrir dómarann, dómarinn afhendi þig réttarþjóninum og hann varpi þér í fangelsi. 59 Ég segi þér, eigi munt þú komast út þaðan fyrr en þú hefur borgað síðasta eyri.“