Könnun fyrirheitna landsins

1 Drottinn talaði til Móse og sagði:
2 „Sendu menn til að kanna Kanaansland sem ég er í þann veginn að gefa Ísraelsmönnum. Þið skuluð senda einn mann frá hverjum ættbálki og skal hver þeirra vera höfðingi meðal Ísraelsmanna.“
3 Móse sendi þá menn af stað frá Paraneyðimörk að boði Drottins. Þeir voru allir leiðtogar meðal Ísraelsmanna. 4 Þetta voru nöfn þeirra:
Samúa Sakkúrsson af ættbálki Rúbens,
5 Safat Hóríson af ættbálki Símeons,
6 Kaleb Jefúnneson af ættbálki Júda,
7 Jígeal Jósefsson af ættbálki Íssakars,
8 Hósea Núnsson af ættbálki Efraíms,
9 Paltí Rafúson af ættbálki Benjamíns,
10 Gaddíel Sódíson af ættbálki Sebúlons,
11 Gaddí Súsíson af ættbálki Jósefs, af ættbálki Manasse,
12 Ammíel Gemallíson af ættbálki Dans,
13 Setúr Míkaelsson af ættbálki Assers,
14 Nakbí Vofsíson af ættbálki Naftalí og
15 Geúel Makíson af ættbálki Gaðs.
16 Þetta voru nöfn þeirra manna sem Móse sendi til að kanna landið. Móse gaf Hósea Núnssyni nafnið Jósúa.
17 Þessa menn sendi Móse til að kanna Kanaansland og sagði við þá: „Farið um Suðurlandið [ og haldið svo áfram upp í fjalllendið. 18 Skoðið landið og hvernig fólkið er sem í því býr, hvort það er sterkbyggt eða veikbyggt, fátt eða margt. 19 Athugið einnig hvort landið, sem það býr í, er gott eða vont og hvernig borgirnar eru sem það býr í, hvort það eru óvarðar búðir eða víggirtar borgir, 20 hvort landið er frjósamt eða harðbýlt, hvort þar vaxa tré eða ekki. Verið hugrakkir og komið með nokkuð af ávöxtum landsins.“ En þetta var á þeim tíma árs er fyrstu vínberin þroskast.
21 Síðan fóru þeir upp eftir og könnuðu landið frá Síneyðimörk til Rehób við Lebó Hamat. 22 Þeir fóru um Suðurlandið til Hebron. Þar bjuggu Ahíman, Sesaí og Talmaí, niðjar Anaks. Hebron hafði verið reist sjö árum áður en Sóan í Egyptalandi. 23 Þeir komu inn í Eskóldal og skáru þar af vínviðargrein með einum vínberjaklasa og þurfti tvo menn til að bera hana á burðarstöng. Einnig tóku þeir með sér nokkuð af granateplum og fíkjum. 24 Þessi staður var nefndur Eskóldalur eftir vínberjaklasanum sem Ísraelsmenn skáru þar af.
25 Þeir sneru aftur fjörutíu dögum síðar þegar þeir höfðu kannað landið. 26 Þeir héldu af stað og komu til Móse, Arons og alls safnaðar Ísraelsmanna í Kades í Paraneyðimörk. Þeir sögðu þeim og öllum söfnuðinum ferðasöguna og sýndu þeim ávexti landsins.
27 Þannig sögðu þeir Móse frá: „Við komum til landsins sem þú sendir okkur til. Það flýtur sannarlega í mjólk og hunangi og hérna eru ávextir þess. 28 En fólkið, sem byggir landið, er sterkbyggt og borgirnar eru víggirtar og mjög stórar. Þar sáum við einnig niðja Anaks. 29 Í Suðurlandinu búa Amalekítar en Hetítar, Jebúsítar og Amorítar í fjalllendinu. Kanverjar búa við hafið og með fram Jórdan.“
30 Kaleb þaggaði niður í fólkinu sem hafði snúist gegn Móse og sagði: „Við getum áreiðanlega farið og tekið landið til eignar því að við getum unnið það.“ 31 En mennirnir, sem höfðu farið upp eftir með honum, sögðu: „Við getum ekki farið gegn þessu fólki því að það er öflugra en við.“
32 Þeir báru út óhróður meðal Ísraelsmanna um landið sem þeir höfðu kannað og sögðu: „Landið, sem við fórum um til að kanna, gleypir íbúa sína. Allt fólk, sem við sáum í landinu, var mjög stórvaxið. 33 Þar sáum við risa en niðjar Anaks eru risar og við vorum eins og engisprettur í eigin augum og einnig í þeirra augum.“