Jesú fagnað

1 Þegar þeir nálguðust Jerúsalem og komu til Betfage við Olíufjallið sendi Jesús tvo lærisveina 2 og sagði við þá: „Farið í þorpið hér fram undan ykkur og jafnskjótt munuð þið finna ösnu bundna og fola hjá henni. Leysið þau og færið mér. 3 Ef einhver hefur orð um, þá svarið: Drottinn[ þarf þeirra við, og mun hann jafnskjótt senda þau.“
4 Þetta varð svo að rættist það sem spámaðurinn sagði fyrir um:
5Segið dótturinni Síon:
Konungur þinn kemur til þín,
hógvær er hann og ríður asna,
fola undan áburðargrip.

6 Lærisveinarnir fóru og gerðu sem Jesús hafði boðið þeim, 7 komu með ösnuna og folann og lögðu á þau klæði sín en Jesús steig á bak. 8 Fjöldamargir breiddu klæði sín á veginn en aðrir hjuggu greinar af trjánum og lögðu á veginn. 9 Og múgur sá sem á undan fór og eftir fylgdi hrópaði: „Hósanna syni Davíðs! Blessaður sé sá sem kemur í nafni Drottins! Hósanna í hæstum hæðum!“
10 Þegar Jesús kom inn í Jerúsalem varð öll borgin í uppnámi og menn spurðu: „Hver er hann?“
11 Fólkið svaraði: „Það er spámaðurinn Jesús frá Nasaret í Galíleu.“

Hús mitt bænahús

12 Þá gekk Jesús í helgidóminn og rak út alla sem voru að selja þar og kaupa, hratt um borðum víxlaranna og stólum dúfnasalanna 13 og mælti við þá: „Ritað er: Hús mitt á að vera bænahús en þið gerið það að ræningjabæli.“
14 Blindir og haltir komu til Jesú í helgidóminum og hann læknaði þá. 15 Æðstu prestarnir og fræðimennirnir sáu dásemdarverkin sem hann gerði og heyrðu börnin hrópa í helgidóminum: „Hósanna syni Davíðs!“ Þeir urðu gramir við 16 og sögðu við Jesú: „Heyrir þú hvað þau segja?“
Jesús svaraði þeim: „Já, hafið þið aldrei lesið þetta: Af munni barna og brjóstmylkinga býrð þú þér lof?“
17 Hann fór frá þeim og úr borginni til Betaníu og hafði þar náttstað.

Fíkjutré við veginn

18 Árla morguns hélt Jesús aftur til borgarinnar og kenndi hungurs. 19 Hann sá fíkjutré eitt við veginn og gekk að því en fann þar ekkert nema blöðin tóm. Hann segir við það: „Aldrei framar vaxi ávöxtur á þér að eilífu.“ Og fíkjutréð visnaði þegar í stað.
20 Lærisveinarnir sáu þetta, undruðust og sögðu: „Hvernig gat fíkjutréð visnað svo fljótt?“
21 Jesús svaraði þeim: „Sannlega segi ég ykkur: Ef þið eigið trú og efist ekki getið þið ekki aðeins gert slíkt sem fram kom við fíkjutréð. Þið gætuð enda sagt við fjall þetta: Lyft þér upp og steyp þér í hafið, og svo mundi fara. 22 Ef þið trúið munuð þið öðlast allt sem þið biðjið.“

Með hvaða valdi?

23 Jesús gekk í helgidóminn. Þá komu æðstu prestarnir og öldungarnir til hans þar sem hann var að kenna og spurðu: „Með hvaða valdi gerir þú þetta? Hver gaf þér þetta vald?“
24 Jesús svaraði þeim: „Ég vil og leggja eina spurningu fyrir ykkur. Ef þið svarið mér mun ég segja ykkur með hvaða valdi ég geri þetta. 25 Hver fól Jóhannesi að skíra, var það Guð eða voru það menn?“ Þeir ráðguðust hver við annan um þetta og sögðu: „Ef við svörum: Það var Guð, spyr hann: Hví trúðuð þið honum þá ekki? 26 Ef við segjum: Það voru menn, megum við óttast fólkið því að allir telja Jóhannes spámann.“ 27 Og þeir svöruðu Jesú: „Við vitum það ekki.“
Jesús sagði við þá: „Ég segi ykkur þá ekki heldur hver fól mér að gera þetta.“

Tveir synir

28 Jesús sagði: „Hvað virðist ykkur? Maður nokkur átti tvo syni. Hann gekk til hins fyrra og sagði: Sonur minn, far þú og vinn í dag í víngarði mínum. 29 Hann svaraði: Það vil ég ekki. En eftir á sá hann sig um hönd og fór. 30 Þá gekk hann til hins síðara og mælti á sömu leið. Hann svaraði: Já, herra, en fór hvergi. 31 Hvor þeirra gerði vilja föðurins?“
Þeir svara: „Sá fyrri.“
Þá mælti Jesús: „Sannlega segi ég ykkur: Tollheimtumenn og skækjur verða á undan ykkur inn í Guðs ríki. 32 Því að Jóhannes kom til ykkar og vísaði ykkur á réttan veg og þið trúðuð honum ekki en tollheimtumenn og skækjur trúðu honum. Það sáuð þið en tókuð samt ekki sinnaskiptum og trúðuð honum.“

Vondir vínyrkjar

33 Enn sagði Jesús: „Heyrið aðra dæmisögu: Landeigandi nokkur plantaði víngarð. Hann hlóð garð um hann, gróf fyrir vínþröng og reisti turn, seldi hann síðan vínyrkjum á leigu og fór úr landi. 34 Þegar ávaxtatíminn nálgaðist sendi hann þjóna sína til vínyrkjanna að fá ávöxt sinn. 35 En vínyrkjarnir tóku þjóna hans, börðu einn, drápu annan og grýttu hinn þriðja. 36 Aftur sendi hann aðra þjóna, fleiri en þá fyrri, og eins fóru þeir með þá. 37 Síðast sendi hann til þeirra son sinn og sagði: Þeir munu virða son minn. 38 Þegar vínyrkjarnir sáu soninn sögðu þeir sín á milli: Þetta er erfinginn. Förum og drepum hann og náum arfi hans. 39 Og þeir tóku hann, köstuðu honum út fyrir víngarðinn og drápu hann.
40 Hvað mun nú eigandi víngarðsins gera við vínyrkja þessa þegar hann kemur?“
41 Þeir svara: „Hann mun vægðarlaust tortíma þeim vondu mönnum og selja víngarðinn öðrum vínyrkjum á leigu sem gjalda honum ávöxtinn á réttum tíma.“
42 Og Jesús segir við þá: „Hafið þið aldrei lesið í ritningunum:
Steinninn sem smiðirnir höfnuðu
er orðinn að hyrningarsteini.
Þetta er verk Drottins
og undursamlegt í augum vorum.

43 Þess vegna segi ég ykkur: Guðs ríki verður tekið frá ykkur og gefið þeirri þjóð sem ber ávexti þess. [ 44 Sá sem fellur á þennan stein mun sundur molast og þann sem hann fellur á mun hann sundur merja.]“[
45 Þegar æðstu prestarnir og farísearnir heyrðu dæmisögur Jesú skildu þeir að hann átti við þá. 46 Þeir vildu taka hann höndum en óttuðust fólkið þar eð menn töldu hann vera spámann.