Sá sem koma skal

1 Þá er Jesús hafði mælt svo fyrir við lærisveina sína tólf hélt hann þaðan að kenna og prédika í borgum þeirra.
2 Jóhannes heyrði í fangelsinu um verk Krists. Þá sendi hann honum orð með lærisveinum sínum og spurði: 3 „Ert þú sá sem koma skal eða eigum við að vænta annars?“
4 Jesús svaraði þeim: „Farið og kunngjörið Jóhannesi það sem þið heyrið og sjáið: 5 Blindir fá sýn og haltir ganga, líkþráir hreinsast[ og daufir heyra, dauðir rísa upp og fátækum er flutt fagnaðarerindi. 6 Og sæll er sá sem ekki hneykslast á mér.“

Meira en spámaður

7 Þegar þeir voru farnir tók Jesús að tala til mannfjöldans um Jóhannes: „Hvað fóruð þér að sjá í óbyggðum? Reyr af vindi skekinn? 8 Hvað fóruð þér að sjá? Prúðbúinn mann? Nei, prúðbúna menn er að finna í sölum konunga. 9 Til hvers fóruð þér? Að sjá spámann? Já, segi ég yður, og það meira en spámann. 10 Hann er sá sem um er ritað:
Ég sendi sendiboða minn á undan þér,
hann á að greiða þér veg.

11 Sannlega segi ég yður: Enginn er sá af konu fæddur sem meiri sé en Jóhannes skírari. En hinn minnsti í himnaríki er honum meiri. 12 Frá dögum Jóhannesar skírara og til þessa er ríki himnanna valdi beitt og árásarmenn reyna að hremma það. 13 Spámennirnir allir og lögmálið, allt fram að Jóhannesi, sögðu fyrir um þetta. 14 Og ef þér viljið við því taka þá er hann Elía, sá sem koma skyldi. 15 Hver sem eyru hefur hann heyri.
16 Við hvað á ég að líkja þessari kynslóð? Lík er hún börnum sem á torgum sitja og kallast á: 17 Vér lékum fyrir yður á flautu og ekki vilduð þér dansa. Vér sungum yður sorgarljóð og ekki vilduð þér syrgja. 18 Jóhannes kom, át hvorki né drakk, og menn segja: Hann hefur illan anda. 19 Mannssonurinn kom, át og drakk, og menn segja: Hann er mathákur og vínsvelgur, vinur tollheimtumanna og bersyndugra! En spekin sannast af verkum sínum.“

Dómsorð

20 Þá tók Jesús að ávíta borgirnar, þar sem hann hafði gert flest kraftaverk sín, fyrir að hafa ekki tekið sinnaskiptum. 21 „Vei þér, Korasín! Vei þér, Betsaída! Ef gerst hefðu í Týrus og Sídon kraftaverkin, sem gerðust í ykkur, hefðu þær löngu iðrast í sekk og ösku. 22 En ég segi ykkur: Týrus og Sídon mun bærilegra á dómsdegi en ykkur. 23 Og þú, Kapernaúm. Verður þú hafin til himins? Nei, til heljar mun þér steypt verða. Ef gerst hefðu í Sódómu kraftaverkin, sem gerðust í þér, þá stæði hún enn í dag. 24 En ég segi yður: Landi Sódómu mun bærilegra á dómsdegi en þér.“

Komið til mín

25 Á þeim tíma tók Jesús svo til orða: „Ég vegsama þig, faðir, Drottinn himins og jarðar, að þú hefur hulið þetta spekingum og hyggindamönnum en opinberað það smælingjum. 26 Já, faðir, svo var þér þóknanlegt.
27 Allt hefur faðir minn falið mér og enginn þekkir soninn nema faðirinn, né þekkir nokkur föðurinn nema sonurinn og sá er sonurinn vill opinbera hann.
28 Komið til mín, öll þér sem erfiðið og þunga eruð hlaðin, og ég mun veita yður hvíld. 29 Takið á yður mitt ok og lærið af mér því að ég er hógvær og af hjarta lítillátur og þá munuð þér finna hvíld sálum yðar. 30 Því að mitt ok er ljúft og byrði mín létt.“