Jesús og Nikódemus

1 Maður hét Nikódemus, af flokki farísea, og átti sæti í öldungaráði Gyðinga. 2 Hann kom til Jesú um nótt og sagði við hann: „Rabbí, við vitum að þú ert lærifaðir kominn frá Guði. Enginn getur gert þessi tákn sem þú gerir nema Guð sé með honum.“
3 Jesús svaraði honum: „Sannlega, sannlega segi ég þér: Enginn getur séð Guðs ríki nema hann fæðist að nýju.“[
4 Nikódemus segir við hann: „Hvernig getur maður fæðst þegar hann er orðinn gamall? Skyldi hann geta komist aftur í líf móður sinnar og fæðst?“
5 Jesús svaraði: „Sannlega, sannlega segi ég þér: Enginn getur komist inn í Guðs ríki nema hann fæðist af vatni og anda. 6 Það sem af manni fæðist er manns barn en það sem fæðist af anda Guðs er Guðs barn. 7 Undrast eigi að ég segi við þig: Ykkur ber að fæðast að nýju. 8 Vindurinn blæs þar sem hann vill og þú heyrir þyt hans. Samt veistu ekki hvaðan hann kemur né hvert hann fer. Svo er um þann sem af andanum er fæddur.“
9 Þá spurði Nikódemus: „Hvernig má þetta verða?“
10 Jesús svaraði honum: „Þú ert lærifaðir í Ísrael og veist þetta ekki? 11 Sannlega, sannlega segi ég þér: Vér tölum um það sem vér þekkjum og vitnum um það sem vér höfum séð en þér takið ekki á móti vitnisburði vorum. 12 Ef þér trúið eigi þegar ég ræði við yður jarðnesk efni, hvernig skylduð þér þá trúa er ég ræði við yður um hin himnesku? 13 Enginn hefur stigið upp til himins nema sá er steig niður frá himni, Mannssonurinn.
14 Og eins og Móse hóf upp höggorminn í eyðimörkinni, þannig á Mannssonurinn að verða upp hafinn 15 svo að hann veiti hverjum sem trúir á hann eilíft líf. 16 Því svo elskaði Guð heiminn að hann gaf einkason sinn til þess að hver sem á hann trúir glatist ekki heldur hafi eilíft líf. 17 Guð sendi ekki soninn í heiminn til að dæma heiminn heldur til þess að frelsa hann.
18 Sá sem trúir á son Guðs dæmist ekki. Sá sem trúir ekki er þegar dæmdur því að hann hefur ekki trúað á nafn Guðs sonarins eina. 19 En þessi er dómurinn: Ljósið er komið í heiminn en menn elskuðu myrkrið fremur en ljósið því að verk þeirra voru vond. 20 Hver sem illt gerir hatar ljósið og kemur ekki til ljóssins svo að verk hans verði ekki uppvís. 21 En sá sem iðkar sannleikann kemur til ljóssins svo að augljóst verði að verk hans eru í Guði gerð.“

Hann á að vaxa

22 Eftir þetta fóru Jesús og lærisveinar hans út í Júdeuhérað. Þar dvaldist hann með þeim og skírði. 23 Jóhannes var líka að skíra í Aínon nálægt Salím en þar var mikið vatn. Menn komu þangað og létu skírast. 24 Þá var ekki enn búið að varpa Jóhannesi í fangelsi.
25 Nú varð deila um hreinsun milli lærisveina Jóhannesar og Gyðings eins. 26 Þeir komu til Jóhannesar og sögðu við hann: „Rabbí, sá sem var hjá þér handan Jórdanar og þú barst vitni um, hann er að skíra og allir koma til hans.“
27 Jóhannes svaraði þeim: „Enginn getur tekið neitt nema Guð gefi honum það. 28 Þið getið sjálfir vitnað um að ég sagði: Ég er ekki Kristur heldur er ég sendur á undan honum. 29 Sá er brúðguminn sem á brúðina en vinur brúðgumans, sem stendur hjá og hlýðir á hann, gleðst mjög við rödd hans. Þessi gleði er nú mín að fullu. 30 Hann á að vaxa en ég að minnka.“

Sá sem kemur að ofan

31 Sá sem kemur að ofan er yfir öllum. Sá sem er af jörðu, hann er af jörðu og talar eins og menn. Sá sem kemur af himni er yfir öllum og 32 vitnar um það sem hann hefur séð og heyrt og enginn tekur á móti vitnisburði hans. 33 En sá sem hefur tekið á móti vitnisburði hans hefur staðfest að Guð sé sannorður. 34 Sá sem Guð sendi talar Guðs orð því ómælt gefur Guð andann. 35 Faðirinn elskar soninn og hefur lagt allt í hönd honum. 36 Sá sem trúir á soninn hefur eilíft líf en sá sem óhlýðnast syninum mun ekki öðlast líf heldur varir reiði Guðs yfir honum.