Orð konungs er máttugt

1Hver er sem spekingurinn
og hver skilur merkingu hlutanna?
Speki mannsins hýrgar andlit hans
og dregur úr hörkunni í svipnum.
2Ég segi: Varðveittu boð konungsins einmitt vegna eiðsins við Guð.
3Vertu ekki fljótur til að ganga burt frá honum,
gefðu þig ekki að illu málefni.
Því að hann gerir allt sem hann vill
4af því að konungsorð er máttugt
og hver segir við hann: Hvað gerir þú?

Ráð Guðs er mönnum hulið

5Sá sem varðveitir skipunina mun ekki verða fyrir neinu illu
og hjarta viturs manns þekkir tíma og dóm.
6Sérhvert verk á sinn tíma og dóm,
og böl mannsins hvílir þungt á honum.
7Hann veit ekki hvað verða muni
því að hver segir honum hvernig muni fara?
8Enginn maður ræður yfir vindinum svo að hann geti stöðvað hann
og enginn maður hefur vald yfir dauðadeginum,
enginn fær sig lausan úr bardaganum
og óhæfan bjargar ekki þeim er hana fremur.

9 Allt þetta hef ég séð af því að ég veitti athygli öllu því sem gerist undir sólinni þegar einn maður drottnar yfir öðrum honum til ógæfu. 10 Þá hef ég séð rangláta menn jarðaða en þeir sem höfðu breytt rétt urðu að fara burt frá hinum heilaga stað og þeir gleymdust í borginni. Einnig það er hégómi.
11 Dómi yfir illskuverkum er ekki fullnægt þegar í stað og því svellur mönnum móður til þess að gera það sem illt er. 12 Syndarinn gerir það sem illt er hundrað sinnum og verður samt gamall þótt ég viti hins vegar að réttlátum mönnum, sem óttast Guð, vegnar vel. 13 Hinum rangláta mun ekki vel vegna og hann verður ekki langlífur fremur en skugginn af því að hann óttast ekki Guð. 14 Það er hégómi sem gerist á jörðinni, að til eru réttlátir menn sem verða fyrir því sem ranglátir eiga skilið og til eru ranglátir menn sem verða fyrir því sem réttlátir eiga skilið. Ég sagði: Einnig það er hégómi.
15 Og ég lofaði gleðina því að ekkert betra er til fyrir manninn undir sólinni en að eta og drekka og vera glaður. Og það fylgir honum í striti hans um ævidagana sem Guð hefur gefið honum undir sólinni. 16 Þegar ég kappkostaði að kynna mér speki og sjá þau verk sem unnin eru á jörðinni, því að hvorki dag né nótt kemur manni blundur á auga, 17 þá sá ég að maðurinn getur ekki skilið til fulls allt verk Guðs, það verk sem gerist undir sólinni, því að hversu mjög sem maðurinn gerir sér far um að leita fær hann þó ekki skilið það til fulls, og enda þótt spekingurinn segist þekkja það fær hann ekki skilið það til fulls heldur.