Fæðing Samsonar

1 Ísraelsmenn gerðu enn að nýju það sem illt var í augum Drottins. Þá gaf Drottinn þá í hendur Filisteum í fjörutíu ár.
2 Maður er nefndur Manóa. Hann var frá Sorea, af ætt Dans. Kona hans var óbyrja og hafði ekki barn alið. 3 Engill Drottins birtist konunni og sagði við hana: „Þú ert óbyrja og hefur ekkert barn alið en þú munt verða þunguð og fæða son. 4 Hafðu nú gætur á þér, drekktu hvorki vín né áfengan drykk og leggðu þér ekkert óhreint til munns 5 því að þú verður þunguð og fæðir son og skal rakhnífur ekki koma á höfuð hans því að sveinninn skal vera helgaður Guði allt frá móðurlífi og hann mun hefja frelsun Ísraels úr hendi Filistea.“ 6 Þá fór konan og sagði við mann sinn: „Guðsmaður nokkur kom til mín og var hann svo ógurlegur ásýndum sem engill Guðs væri en ég spurði hann ekki hvaðan hann væri og nafn sitt sagði hann mér ekki. 7 Hann sagði við mig: Þú munt verða þunguð og fæða son. Drekktu því hvorki vín né áfengan drykk og leggðu þér ekkert óhreint til munns því að sveinninn skal vera helgaður Guði allt frá móðurlífi til dauðadags.“
8 Þá bað Manóa Drottin og sagði: „Æ, herra, láttu guðsmanninn, sem þú sendir, koma til okkar aftur svo að hann geti kennt okkur hvernig við eigum að fara með sveininn sem á að fæðast.“ 9 Guð heyrði bæn Manóa og engill Guðs kom aftur til konunnar. Var hún þá stödd úti á víðavangi og Manóa maður hennar var ekki hjá henni. 10 Þá hljóp konan sem skjótast til manns síns og sagði við hann: „Maðurinn, sem kom til mín um daginn, hefur birst mér.“ 11 Þá reis Manóa upp og fór á eftir konu sinni. Hann kom til mannsins og sagði við hann: „Ert þú maðurinn sem talaðir við konuna?“ Hann svaraði: „Já.“ 12 Þá sagði Manóa: „Ef það kemur fram sem þú hefur sagt, hvernig á þá að fara með sveininn og hvað á hann að gera?“ 13 Engill Drottins sagði við Manóa: „Konan skal forðast allt það sem ég hef sagt henni. 14 Hún skal ekkert það snæða er af vínviði kemur, hvorki drekka vín né áfengan drykk, og ekki leggja sér neitt óhreint til munns. Hún skal gæta alls þess sem ég hef boðið henni.“
15 Þá sagði Manóa við engil Drottins: „Leyfðu okkur að tefja þig stundarkorn svo að við getum eldað handa þér kiðling.“ 16 En engill Drottins sagði við Manóa: „Þótt þú fáir mig til að tefja snæði ég samt ekki af mat þínum en viljir þú útbúa brennifórn skaltu færa Drottni hana.“ 17 En Manóa vissi ekki að þetta var engill Drottins. Þá sagði Manóa við engil Drottins: „Hvert er nafn þitt? Rætist orð þín munum við tigna þig.“ 18 Engill Drottins svaraði honum: „Hví spyrð þú mig að nafni? Nafn mitt er undursamlegt.“ 19 Manóa tók geithafurinn og matfórnina og færði hana Drottni á kletti einum. Þá urðu undur mikil að þeim Manóa og konu hans ásjáandi. 20 Þegar logann lagði upp af altarinu til himins leið engill Drottins upp í altarisloganum. Þegar þau Manóa og kona hans sáu það féllu þau til jarðar fram á ásjónu sína. 21 Eftir þetta birtist engill Drottins Manóa og konu hans ekki framar. Þá sá Manóa að þetta hafði verið engill Drottins. 22 Manóa sagði við konu sína: „Við munum örugglega deyja því að við höfum séð Guð.“
23 En kona hans svaraði: „Hefði Drottinn viljað deyða okkur þá hefði hann ekki þegið brennifórn og matfórn af okkur eða látið okkur sjá allt þetta og þá hefði hann ekki látið okkur heyra hluti sem þessa.“
24 Konan ól son og nefndi hann Samson og sveinninn óx upp og Drottinn blessaði hann. 25 Og andi Drottins tók að hreyfa við honum í herbúðum Dans milli Sorea og Estaól.