Jósía Júdakonungur

1 Jósía var átta ára þegar hann varð konungur og ríkti í Jerúsalem þrjátíu og eitt ár. Móðir hans hét Jedída Adajadóttir frá Boskat. 2 Hann gerði það sem rétt var í augum Drottins. Hann fetaði í fótspor Davíðs, forföður síns, og vék hvorki til hægri né vinstri frá þeim.

Lögbókin fundin

3 Nú bar svo við á átjánda stjórnarári Jósía konungs að hann sendi ríkisritarann Safan Asaljason Mesúllamssonar til musteris Drottins og sagði: 4 „Farðu til Hilkía yfirprests. Hann á að reiða fram það fé sem borið hefur verið í musteri Drottins og þeir sem gæta hliðanna[ hafa safnað saman hjá fólkinu. 5 Síðan skal það fengið verkstjórunum í musteri Drottins og skulu þeir greiða það verkamönnunum sem vinna við að lagfæra skemmdir á því, 6 trésmiðum, byggingarverkamönnum og steinsmiðum. Enn fremur skal kaupa fyrir það timbur og höggna steina sem þarf til þess að gera við húsið. 7 Ekki skal krefja þá reikningsskila sem trúað er fyrir fénu því að þeir bera sjálfir ábyrgð á verki sínu.“
8 Hilkía yfirprestur sagði þá við Safan ríkisritara: „Ég fann lögbók í musteri Drottins.“ Hann fékk honum bókina og Safan las hana. 9 Síðan kom Safan ríkisritari til konungs og sagði: „Þjónar þínir hafa reitt fram féð, sem fannst í musteri Drottins, og fengið það verkstjórunum þar.“ 10 Og Safan ríkisritari sagði við konunginn: „Hilkía yfirprestur fékk mér bók.“ Og Safan las hana fyrir konung.
11 Konungur reif klæði sín þegar hann heyrði það sem stóð í lögbókinni 12 og gaf þeim Hilkía yfirpresti, Ahíkam Safanssyni, Akbór Míkajasyni, Safan ríkisritara og Asaja, þjóni konungs, svohljóðandi fyrirmæli: 13 „Farið og spyrjið Drottin fyrir mig og þjóðina og allan Júda um það sem stendur í bókinni sem hefur fundist. Því að mikil er heift Drottins sem blossað hefur upp gegn okkur þar sem forfeður okkar hafa ekki hlýtt ákvæðum þessarar bókar með því að fara eftir því sem í henni stendur.“

Hulda spámaður

14 Þá gekk Hilkía yfirprestur ásamt Ahíkam, Akbór, Safan og Asaja til Huldu spámanns. Hún var eiginkona Sallúms Tíkvasonar, Harhassonar klæðavarðar. Hún bjó í nýja borgarhverfinu í Jerúsalem.
Þeir sögðu henni erindi sitt 15 og hún svaraði: „Svo segir Drottinn, Guð Ísraels: Segið þeim sem sendi ykkur til mín: 16 Svo segir Drottinn: Ég sendi böl yfir þennan stað og íbúa hans, öll dómsorð bókarinnar sem Júdakonungur hefur lesið. 17 Þetta verður vegna þess að þeir hafa yfirgefið mig og fært öðrum guðum reykelsisfórnir. Þeir hafa vakið reiði mína með öllum handaverkum sínum, þess vegna brennur heift mín gegn þessum stað og hún mun ekki slokkna.
18 Skilið þessu til Júdakonungs sem sendi ykkur til þess að leita svara hjá Drottni: Svo segir Drottinn, Guð Ísraels: Dómsorðin, sem þú heyrðir, 19 milduðu hjarta þitt og þú auðmýktir þig fyrir augliti Drottins. Þegar þú heyrðir dómsorðin um tortímingu og bannfæringu gegn þessum stað og íbúum hans reifstu klæði þín og grést frammi fyrir mér. Þess vegna bænheyri ég þig, segir Drottinn. 20 Þess vegna mun ég láta þig safnast til feðra þinna og þú skalt lagður í gröf þína í friði. Augu þín skulu ekki líta allt það böl sem ég mun senda yfir þennan stað.“ Þetta svar færðu þeir konungi.