Kveðja

1 Páll, að vilja Guðs postuli Krists Jesú, heilsar hinum heilögu í Efesus sem trúa á Krist Jesú.
2 Náð sé með yður og friður frá Guði föður vorum og Drottni Jesú Kristi.

Lofgjörð

3 Lofaður sé Guð og faðir Drottins vors Jesú Krists sem í Kristi hefur blessað oss með allri andlegri blessun himinsins. 4 Áður en grunnur heimsins var lagður útvaldi hann oss í Kristi að hann hefði oss fyrir augum sér heilög og lýtalaus í kærleika.
5Fyrir fram ákvað hann að gera oss að börnum sínum í Jesú Kristi.
Sá var náðarvilji hans.
6Hann vildi að vér yrðum til vegsemdar dýrð hans og náð
sem hann hefur gefið oss í sínum elskaða syni.
7Í honum, fyrir hans blóð, eigum vér endurlausnina
og fyrirgefningu afbrota vorra.
8Svo auðug er náð hans sem hann gaf oss ríkulega
með hvers konar vísdómi og skilningi.
9Og hann hefur birt oss leyndardóm vilja síns,
þann ásetning um Krist
10sem hann í náð sinni ætlaði sér að framkvæma í fyllingu tímanna:
Að safna öllu sem til er á himni og jörðu undir eitt höfuð í Kristi.
11Í honum höfum vér þá líka öðlast arfleifðina
eins og oss var fyrirhugað samkvæmt fyrirætlun hans
er framkvæmir allt eftir ályktun vilja síns
12til þess að vér, sem áður höfum sett von vora til Krists,
skyldum vera dýrð hans til vegsemdar.
13Í honum eruð og þér eftir að hafa heyrt orð sannleikans,
fagnaðarerindið um sáluhjálp yðar
og tekið trú á hann
og verið merkt innsigli heilags anda sem yður var fyrirheitið.
14Hann er pantur arfleifðar vorrar
að vér verðum endurleyst Guði til eignar,
dýrð hans til vegsemdar.

Þakkir og fyrirbæn

15 Eftir að hafa heyrt um trú ykkar á Drottin Jesú og um kærleika ykkar til allra heilagra 16 hef ég þess vegna ekki heldur látið af að þakka fyrir ykkur er ég minnist ykkar í bænum mínum. 17 Ég bið Guð Drottins vors Jesú Krists, föður dýrðarinnar, að gefa ykkur anda speki og opinberunar svo að þið fáið þekkt hann. 18 Ég bið hann að upplýsa sjón hjartans svo að þið sjáið hver sú von er sem hann hefur kallað okkur til, hve ríkulega og dýrlega arfleifð hann ætlar okkur meðal hinna heilögu 19 og hve kröftuglega hann verkar í okkur sem trúum. En þetta er sami áhrifamikli, kröftugi mátturinn 20 sem hann lét koma fram í Kristi er hann vakti hann frá dauðum og lét hann setjast sér til hægri handar á himnum, 21 ofar hverri tign og valdi og mætti, ofar öllum herradómi og sérhverju nafni sem nefnt er, ekki aðeins í þessari veröld heldur og í hinni komandi. 22 Allt hefur hann lagt undir fætur honum og gefið hann kirkjunni sem höfuðið yfir öllu. 23 En kirkjan er líkami hans og fyllist af honum sem sjálfur fyllir allt í öllu.