Gjafir ættbálkahöfðingjanna

1 Daginn sem Móse lauk við að reisa tjaldbúðina, hafði smurt hana og helgað ásamt öllum áhöldum sem henni heyrðu til, reisti hann altarið og smurði það og helgaði ásamt öllum áhöldum þess. 2 Foringjar Ísraels, sem voru höfðingjar fjölskyldna þeirra, ættarhöfðingjar, leiðtogar þeirra sem voru taldir, 3 komu þá með gjafir sínar fram fyrir auglit Drottins, sex lokaða vagna og tólf naut, einn vagn fyrir hverja tvo höfðingja og naut fyrir hvern þeirra. Þeir komu með þetta að framhlið tjaldbúðarinnar.
4 Drottinn ávarpaði Móse og sagði:
5 „Taktu við þessum gjöfum af þeim. Þær á að nota við störfin í samfundatjaldinu. Þú skalt fá þær Levítunum, hverjum það sem hann þarf til síns verks.“
6 Móse tók við vögnunum og nautunum og fékk Levítunum. 7 Hann fékk niðjum Gersons tvo vagna og fjögur naut til starfa sinna. 8 Hann fékk niðjum Merarí fjóra vagna og átta naut til starfa sinna en þeir voru undir stjórn Ítamars prests Aronssonar. 9 En niðjum Kahats fékk hann ekkert því að störf þeirra voru við helgidóminn sem þeir áttu að bera á herðum sér.
10 Höfðingjarnir báru fram gjafir vegna vígslu altarisins daginn sem það var smurt, þeir færðu gjafir sínar fram fyrir altarið.
11 Drottinn hafði sagt við Móse: „Hvern dag skal einn höfðingi bera fram gjöf sína vegna vígslu altarisins.“
12 Fyrsta daginn færði Nakson Ammínadabsson af ættbálki Júda fram gjöf sína. 13 Gjöf hans var silfurfat sem var hundrað og þrjátíu siklar að þyngd, silfurskál sem vó sjötíu sikla á vog helgidómsins. Bæði ílátin voru fyllt fínu mjöli, blönduðu olíu, til kornfórnar. 14 Enn fremur gullskál, sem vó tíu sikla, fyllt reykelsi. 15 Auk þess ungt naut, hrútur og veturgamalt lamb til brennifórnar, 16 geithafur til syndafórnar 17 og til lokasláturfórnar tvö naut, fimm hrútar og fimm veturgömul lömb. Þetta var gjöf Naksons Ammínadabssonar.
18 Annan daginn færði Netanel Súarsson, höfðingi Íssakars, fram gjöf sína. 19 Færði hann að gjöf silfurfat sem vó hundrað og þrjátíu sikla, silfurskál sem vó sjötíu sikla á vog helgidómsins. Bæði ílátin voru fyllt fínu mjöli, blönduðu olíu, til kornfórnar. 20 Enn fremur gullskál, sem vó tíu sikla, fyllt reykelsi. 21 Auk þess ungt naut, hrút og veturgamalt lamb til brennifórnar, 22 geithafur til syndafórnar 23 og til lokasláturfórnar tvö naut, fimm hrúta, fimm geithafra og fimm veturgömul lömb. Þetta var gjöf Netanels Súarssonar.
24 Þriðja daginn kom Elíab Helónsson, höfðingi Sebúlonsniðja. 25 Gjöf hans var silfurfat sem vó hundrað og þrjátíu sikla, silfurskál sem vó sjötíu sikla á vog helgidómsins. Bæði ílátin voru fyllt fínu mjöli, blönduðu olíu, til kornfórnar. 26 Enn fremur gullskál, sem vó tíu sikla, fyllt reykelsi. 27 Auk þess ungt naut, hrútur og veturgamalt lamb til brennifórnar, 28 geithafur til syndafórnar 29 og til lokasláturfórnar tvö naut, fimm hrútar og fimm veturgömul lömb. Þetta var gjöf Elíabs Helónssonar.
30 Fjórða daginn kom Elísúr Sedeúrsson, höfðingi Rúbensniðja. 31 Gjöf hans var silfurfat sem vó hundrað og þrjátíu sikla, silfurskál sem vó sjötíu sikla á vog helgidómsins. Bæði ílátin voru fyllt fínu mjöli, blönduðu olíu, til kornfórnar. 32 Enn fremur gullskál, sem vó tíu sikla, fyllt reykelsi. 33 Auk þess ungt naut, hrútur og veturgamalt lamb til brennifórnar, 34 geithafur til syndafórnar 35 og til lokasláturfórnar tvö naut, fimm hrútar og fimm veturgömul lömb. Þetta var gjöf Elísúrs Sedeúrssonar.
36 Fimmta daginn kom Selúmíel Súrísaddaíson, höfðingi Símeonsniðja. 37 Gjöf hans var silfurfat sem vó hundrað og þrjátíu sikla, silfurskál sem vó sjötíu sikla á vog helgidómsins. Bæði ílátin voru fyllt fínu mjöli, blönduðu olíu, til kornfórnar. 38 Enn fremur gullskál, sem vó tíu sikla, fyllt reykelsi. 39 Auk þess ungt naut, hrútur og veturgamalt lamb til brennifórnar, 40 geithafur til syndafórnar 41 og til heillafórnar tvö naut, fimm hrútar og fimm veturgömul lömb. Þetta var gjöf Selúmíels Súrísaddaísonar.
42 Sjötta daginn kom Eljasaf Degúelsson, höfðingi Gaðssona. 43 Gjöf hans var silfurfat sem vó hundrað og þrjátíu sikla, silfurskál sem vó sjötíu sikla á vog helgidómsins. Bæði ílátin voru fyllt fínu mjöli, blönduðu olíu, til kornfórnar. 44 Enn fremur gullskál, sem vó tíu sikla, fyllt reykelsi. 45 Auk þess ungt naut, hrútur og veturgamalt lamb til brennifórnar, 46 geithafur til syndafórnar 47 og til lokasláturfórnar tvö naut, fimm hrútar og fimm veturgömul lömb. Þetta var gjöf Eljasafs Degúelssonar.
48 Sjöunda daginn kom Elísama Ammíhúðsson, höfðingi Efraímsniðja. 49 Gjöf hans var silfurfat sem vó hundrað og þrjátíu sikla, silfurskál sem vó sjötíu sikla á vog helgidómsins. Bæði ílátin voru fyllt fínu mjöli, blönduðu olíu, til kornfórnar. 50 Enn fremur gullskál, sem vó tíu sikla, fyllt reykelsi. 51 Auk þess ungt naut, hrútur og veturgamalt lamb til brennifórnar, 52 geithafur til syndafórnar 53 og til lokasláturfórnar tvö naut, fimm hrútar og fimm veturgömul lömb. Þetta var gjöf Elísama Ammíhúðssonar.
54 Áttunda daginn kom Gamlíel Pedasúrsson, höfðingi Manassesona. 55 Gjöf hans var silfurfat sem vó hundrað og þrjátíu sikla, silfurskál sem vó sjötíu sikla á vog helgidómsins. Bæði ílátin voru fyllt fínu mjöli, blönduðu olíu, til kornfórnar. 56 Enn fremur gullskál, sem vó tíu sikla, fyllt reykelsi. 57 Auk þess ungt naut, hrútur og veturgamalt lamb til brennifórnar, 58 geithafur til syndafórnar 59 og til lokasláturfórnar tvö naut, fimm hrútar og fimm veturgömul lömb. Þetta var gjöf Gamlíels Pedasúrssonar.
60 Níunda daginn kom Abídan Gídoníson, höfðingi Benjamínssona. 61 Gjöf hans var silfurfat sem vó hundrað og þrjátíu sikla, silfurskál sem vó sjötíu sikla á vog helgidómsins. Bæði ílátin voru fyllt með fínu mjöli, blönduðu olíu, til kornfórnar. 62 Enn fremur gullskál, sem vó tíu sikla, fyllt reykelsi. 63 Auk þess ungt naut, hrútur og veturgamalt lamb til brennifórnar, 64 geithafur til syndafórnar 65 og til lokasláturfórnar tvö naut, fimm hrútar og fimm veturgömul lömb. Þetta var gjöf Abídans Gídonísonar.
66 Tíunda daginn kom Akíeser Ammísaddaíson, höfðingi Dansniðja. 67 Gjöf hans var silfurfat sem vó hundrað og þrjátíu sikla, silfurskál sem vó sjötíu sikla á vog helgidómsins. 68 Enn fremur gullskál, sem vó tíu sikla, fyllt reykelsi. 69 Auk þess ungt naut, hrútur og veturgamalt lamb til brennifórnar, 70 geithafur til syndafórnar 71 og til lokasláturfórnar tvö naut, fimm hrútar og fimm veturgömul lömb. Þetta var gjöf Akíesers Ammísaddaísonar.
72 Ellefta daginn kom Pagíel Ókransson, höfðingi Assersniðja. 73 Gjöf hans var silfurfat sem vó hundrað og þrjátíu sikla, silfurskál sem vó sjötíu sikla á vog helgidómsins. Bæði ílátin voru fyllt fínu mjöli, blönduðu olíu, til kornfórnar. 74 Enn fremur gullskál, sem vó tíu sikla, fyllt reykelsi. 75 Auk þess ungt naut, hrútur og veturgamalt lamb til brennifórnar, 76 geithafur til syndafórnar 77 og til lokasláturfórnar tvö naut, fimm hrútar og fimm veturgömul lömb. Þetta var gjöf Pagíels Ókranssonar.
78 Tólfta daginn kom Akíra Enansson, höfðingi niðja Naftalí. 79 Gjöf hans var silfurfat sem vó hundrað og þrjátíu sikla, silfurskál sem vó sjötíu sikla á vog helgidómsins. Bæði ílátin voru fyllt fínu mjöli, blönduðu olíu, til kornfórnar. 80 Enn fremur gullskál, sem vó tíu sikla, fyllt reykelsi. 81 Auk þess ungt naut, hrútur og veturgamalt lamb til brennifórnar, 82 geithafur til syndafórnar 83 og til lokasláturfórnar tvö naut, fimm hrútar og fimm veturgömul lömb. Þetta var gjöf Akíra Enanssonar.
84 Þetta voru gjafir höfðingja Ísraels vegna vígslu altarisins daginn sem það var smurt: tólf silfurföt, tólf silfurskálar, tólf gullskálar. 85 Hvert silfurfat vó hundrað og þrjátíu sikla og hver silfurskál vó sjötíu sikla. Alls vó silfrið í ílátunum tvö þúsund og fjögur hundruð sikla á vog helgidómsins. 86 Enn fremur tólf gullskálar fylltar reykelsi. Hver skál vó tíu sikla á vog helgidómsins. Alls vó gullið í skálunum hundrað og tuttugu sikla.
87 Nautgripirnir, sem ætlaðir voru til brennifórnar, voru tólf ungneyti, enn fremur tólf hrútar, tólf geithafrar, tólf veturgömul lömb ásamt kornfórninni sem heyrir til. 88 Nautgripirnir, sem ætlaðir voru til lokasláturfórnar, voru tuttugu og fjögur ungneyti, enn fremur sextíu hrútar, sextíu geithafrar, sextíu veturgömul lömb. Þetta var gjöf vegna vígslu altarisins eftir að það hafði verið smurt.
89 Hverju sinni sem Móse gekk inn í samfundatjaldið til þess að tala við Drottin heyrði hann röddina sem ávarpaði hann frá lokinu sem er á örk sáttmálstáknsins, staðnum milli kerúbanna. Þaðan talaði Drottinn til Móse.