Speki og heimska

1Spekin hefur reist sér hús
og höggvið til sjö stólpa sína.
2Hún hefur slátrað sláturfé sínu,
blandað vín sitt og búið borð sitt.
3Hún hefur sent út þernur sínar,
hún kallar af hæðunum í borginni:
4„Hver sem óreyndur er komi hingað.“
Og við hinn fávísa segir hún:
5„Komið, etið mat minn og drekkið vínið
sem ég hef blandað.
6Látið af flónsku, þá munuð þér lifa,
gangið á braut skynseminnar.“
7Sá sem átelur háðskan mann verður aðhlátursefni
og sá sem ávítar hinn rangláta verður hafður að háði.
8Ávítaðu ekki hinn háðska svo að hann hati þig ekki,
ávítaðu hinn vitra og hann mun elska þig.
9Gefðu hinum vitra, þá verður hann að vitrari,
fræddu hinn réttláta og hann mun auka lærdóm sinn.
10Að óttast Drottin er upphaf spekinnar
og að þekkja Hinn heilaga er hyggindi.
11Með mínu fulltingi verða dagar þínir margir
og árum lífs þíns fjölgar.
12Sértu vitur verður vitið þér til góðs
en sértu spottari þá mun það bitna á þér einum.
13Heimskan er eirðarlaus,
léttúðug og veit ekkert.
14Hún situr við dyr sínar,
býr sér sess á hæðum borgarinnar
15til þess að kalla á þá sem fara hjá,
þá sem stefna fram á leið sinni:
16„Hver sem óreyndur er komi hingað.“
Og við hinn fávísa segir hún:
17„Stolið vatn er sætt
og lostætt er launetið brauð.“
18Og hann veit ekki að þar eru heimkynni hinna dauðu,
að gestir hennar hafna í djúpum heljar.