Fimmta bók

1Þakkið Drottni því að hann er góður,
því að miskunn hans varir að eilífu.
2Svo skulu hinir endurleystu Drottins segja,
þeir er hann hefur leyst úr nauðum
3og safnað saman frá öðrum löndum,
frá austri og vestri, frá norðri og suðri.
4Þeir reikuðu um eyðimörkina, um veglaus öræfin,
og fundu eigi leið til byggilegrar borgar.
5Þá hungraði og þyrsti
og lífskraftur þeirra þvarr.
6Þá hrópuðu þeir til Drottins í neyð sinni,
hann bjargaði þeim úr þrengingum þeirra,
7leiddi þá á réttan veg
svo að þeir komust til byggilegrar borgar.
8Þeir skulu þakka Drottni miskunn hans
og dásemdarverk hans við mannanna börn
9því að hann svalaði hinum þyrsta
og mettaði hungraðan gæðum.
10Þeir sem sátu í sorta og svartnætti
voru fangar í eymd og járnum
11því að þeir höfðu þrjóskast gegn boðorðum Guðs
og haft að engu ráð Hins hæsta.
12Hann beygði hug þeirra með mæðu,
þeir hrösuðu og enginn kom til hjálpar.
13Þeir hrópuðu til Drottins í neyð sinni,
hann bjargaði þeim úr þrengingum þeirra,
14leiddi þá út úr sortanum og svartnættinu
og sleit sundur fjötra þeirra.
15Þeir skulu þakka Drottni miskunn hans
og dásemdarverk hans við mannanna börn
16því að hann braut eirhliðin
og mölvaði járnslárnar.
17Þeir sem sýktust vegna syndugs lífernis,
þjáðust vegna misgjörða sinna,
18þeim bauð við allri fæðu
og þeir voru nærri dauðans dyrum.
19Þá hrópuðu þeir til Drottins í neyð sinni
og hann bjargaði þeim úr þrengingum þeirra,
20sendi orð sitt og læknaði þá
og bjargaði þeim frá gröfinni.
21Þeir skulu þakka Drottni miskunn hans
og dásemdarverk hans við mannanna börn,
22 færa honum þakkarfórnir
og segja frá verkum hans með fögnuði.
23 Þeir sem fóru um hafið á skipum
og ráku verslun á hinum miklu höfum
24 sáu verk Drottins
og dásemdarverk hans á djúpinu.
25 Því að hann bauð og þá kom stormviðri
sem hóf upp öldur hafsins.
26 Þeir hófust til himins, hnigu í djúpið,
og þeim féllst hugur í háskanum.
27 Þeir skjögruðu og reikuðu eins og drukkinn maður
og kunnátta þeirra kom að engu haldi.
28 Þá hrópuðu þeir til Drottins í neyð sinni
og hann bjargaði þeim úr þrengingum þeirra.
29 Hann breytti storminum í blíðan blæ
og öldur hafsins lægði.
30 Þeir glöddust þegar þær kyrrðust
og hann leiddi þá til þeirrar hafnar sem þeir þráðu.
31 Þeir skulu þakka Drottni miskunn hans
og dásemdarverk hans við mannanna börn,
32 vegsama hann í söfnuði þjóðarinnar
og lofa hann í ráði öldunganna.
33 Hann gerir fljótin að eyðimörk
og uppsprettur að þurrum lendum,
34 frjósamt land að saltsléttu
sakir illsku íbúanna.
35 Hann gerir eyðimörk að vatnstjörnum
og þurrlendið að uppsprettum,
36 lætur hungraða setjast þar að
og reisir þeim borg til að búa í.
37 Þeir sá í akra, planta víngarða
og uppskera ríkulega.
38 Hann blessar þá og þeir margfaldast
og ekki fækkar hann fénaði þeirra.
39 En þótt þeim fækki og þeir hnígi niður
undan kúgun, böli og harmi
40 eys hann smán yfir höfðingja,
lætur þá villast í veglausri auðn,
41 en hinn snauða hefur hann upp úr eymd sinni
og gerir ættirnar sem hjarðir.
42 Hinir réttvísu sjá það og gleðjast
og allt illt lokar munni sínum.
43 Hver sem er vitur gefi gætur að þessu
og menn taki eftir náðarverkum Drottins.