Vei þeim er veldur

1 Jesús sagði við lærisveina sína: „Eigi verður umflúið að menn séu tældir til falls en vei þeim sem því veldur. 2 Betra væri honum að hafa mylnustein um hálsinn og vera varpað í hafið en að tæla einn af þessum smælingjum til falls.

Fyrirgefning

3 Hafið gát á sjálfum yður. Ef bróðir þinn syndgar, þá ávíta hann og ef hann sér að sér, þá fyrirgef honum. 4 Og þótt hann misgeri við þig sjö sinnum á dag og snúi sjö sinnum aftur til þín og segi: Ég iðrast, þá skalt þú fyrirgefa honum.“

Trú

5 Postularnir sögðu við Drottin: „Auk oss trú!“
6 En Drottinn sagði: „Ef þér hefðuð trú eins og mustarðskorn gætuð þér sagt við mórberjatré þetta: Ríf þig upp með rótum og fest rætur í sjónum, og það mundi hlýða yður.

Þjónusta

7 Hafi einhver yðar þjón, er plægir eða hirðir fénað, segir hann þá við hann þegar hann kemur inn af akri: Kom þegar og set þig til borðs? 8 Segir hann ekki fremur við hann: Bú þú mér kvöldverð, tak þig til og þjóna mér meðan ég et og drekk, síðan getur þú etið og drukkið. 9 Og er hann þakklátur þjóni sínum fyrir að gera það sem boðið var? 10 Eins skuluð þér segja, þá er þér hafið gert allt sem yður var boðið: Ónýtir þjónar erum vér. Vér höfum gert það eitt sem oss bar að gera.“

Hvar eru hinir níu?

11 Svo bar við á ferð Jesú til Jerúsalem að leið hans lá á mörkum Samaríu og Galíleu. 12 Og er hann kom inn í þorp nokkurt mættu honum tíu líkþráir menn. Þeir stóðu álengdar, 13 hófu upp raust sína og kölluðu: „Jesús, meistari, miskunna þú oss!“
14 Jesús sá þá og sagði við þá: „Farið og sýnið yður prestunum.“ Þeir héldu af stað og nú brá svo við að þeir urðu hreinir.[ 15 En einn þeirra sneri aftur er hann sá að hann var heill orðinn og lofaði Guð hárri raustu. 16 Hann féll fram að fótum Jesú og þakkaði honum. En hann var Samverji. 17 Jesús sagði: „Urðu ekki allir tíu hreinir? Hvar eru hinir níu? 18 Urðu engir til þess að snúa aftur að gefa Guði dýrðina nema þessi útlendingur?“ 19 Síðan mælti Jesús við hann: „Statt upp og far leiðar þinnar. Trú þín hefur bjargað þér.“

Innra með yður

20 Farísear spurðu Jesú hvenær Guðs ríki kæmi. Hann svaraði þeim: „Guðs ríki kemur ekki þannig að á því beri. 21 Ekki munu menn segja: Sjá, þar er það eða hér er það því að Guðs ríki er innra með yður.“[

Er Mannssonurinn opinberast

22 Og Jesús sagði við lærisveinana: „Þeir dagar munu koma að þér þráið að sjá einn dag Mannssonarins og munuð eigi sjá hann. 23 Menn munu segja við yður: Sjá hér, sjá þar. En farið ekki og hlaupið eftir því. 24 Mannssonurinn kemur eins og elding sem leiftrar og lýsir frá einu skauti himins til annars. 25 En fyrst á hann margt að líða og þessi kynslóð mun útskúfa honum.
26 Eins og var á dögum Nóa, svo mun og verða á dögum Mannssonarins: 27 Menn átu og drukku, kvæntust og giftust allt til þess dags er Nói gekk í örkina og flóðið kom og tortímdi öllum. 28 Eins var og á dögum Lots: Menn átu og drukku, keyptu og seldu, gróðursettu og byggðu. 29 En daginn sem Lot fór úr Sódómu rigndi eldi og brennisteini af himni og tortímdi öllum. 30 Eins mun verða á þeim degi er Mannssonurinn opinberast.
31 Sá sem þann dag er á þaki uppi og á muni sína í húsinu fari ekki ofan að sækja þá. Og sá sem er á akri skal ekki heldur hverfa aftur. 32 Minnist konu Lots. 33 Sá sem vill sjá lífi sínu borgið mun týna því en sá sem týnir því mun öðlast líf. 34 Ég segi yður: Á þeirri nóttu verða tveir í einni hvílu, annar mun tekinn, hinn eftir skilinn. 35 Tvær munu mala á sömu kvörn, önnur verður tekin, hin eftir skilin. [ 36 Tveir verða á akri, annar mun tekinn, hinn eftir skilinn.]“[
37 Þeir spurðu hann þá: „Hvar, herra?“
En hann sagði við þá: „Þar munu ernirnir safnast sem hræið er.“