Harmljóð yfir Ísrael

1 Heyrið þetta orð, þetta harmljóð, sem ég flyt um yður, Ísraelsmenn!
2 Fallin er mærin Ísrael,
rís aldrei aftur,
flöt liggur hún á eigin landi,
enginn reisir hana upp.
3 Því að svo segir Drottinn:
Sú borg, sem sendir út þúsund manna lið,
fær hundrað manna lið heim aftur,
sú, sem sendir út hundrað manna lið,
fær aðeins tíu menn heim aftur.
4 Því að svo segir Drottinn við Ísraelsmenn:
Leitið mín og þér munuð lifa.
5 Leitið ekki til Betel,
farið ekki til Gilgal,
haldið ekki yfir til Beerseba.
Því að Gilgal fer í útlegð
og Betel verður að engu.
6 Leitið Drottins og þér munuð lifa.
Annars mun hann þrengja sér inn í ætt Jakobs
eins og eyðandi eldur
og enginn slekkur hann í Betel.[
8 Hann gerði sjöstjörnuna og Óríon
og breytir niðamyrkri í heiðan morgun
og degi í dimma nótt.
Hann kallar á hafið
og eys því á yfirborð jarðar,
Drottinn er nafn hans.
9 Hann sendir eyðingu gegn hinum sterka
og tortíming kemur yfir víggirta borg.

Réttinum hallað

7 Vei þeim sem breyta réttinum í malurt
og steypa réttlætinu til jarðar.
10Þeir hata þann sem fellir réttlátan dóm í borgarhliðinu
og forðast þann sem segir satt.
11Af því að þér takið vexti af landleigu lítilmagnans
og leggið skatt á kornuppskeru hans
munuð þér reisa hús úr höggnu grjóti
en ekki búa í þeim sjálfir,
gróðursetja afbragðs víngarða
en ekki drekka vínið sjálfir.
12Já, ég veit að glæpir yðar eru margir
og syndir yðar miklar.
Þér þröngvið þeim sem hefur á réttu að standa,
þiggið mútur og vísið hinum snauða frá réttinum.
13Þess vegna þegir hygginn maður á slíkri tíð
því að það er vond tíð.
14Leitið hins góða en ekki hins illa,
þá munuð þér lifa
og þá verður Drottinn, Guð hersveitanna, með yður
eins og þér hafið sagt.
15Hatið hið illa og elskið hið góða,
eflið réttinn í borgarhliðinu.
Þá má vera að Drottinn, Guð hersveitanna, miskunni sig yfir þá
sem eftir eru af ætt Jósefs.

Dagur Drottins

16Þess vegna segir Drottinn, Guð hersveitanna:
Harmað er á hverju torgi
og kveinað á hverju stræti: „Vei, vei!“
Akuryrkjumaðurinn er kvaddur til sorgarathafnar
og sá sem kann harmljóð er sóttur til að flytja þau.
17Í hverjum víngarði er kveinað
því að ég mun ganga um á meðal yðar,
segir Drottinn.
18Vei þeim sem hlakkar til dags Drottins.
Hvað færir dagur Drottins yður?
Hann færir myrkur, ekki ljós,
19líkt og maður flýi undan ljóni
en verði á vegi bjarndýrs,
komist heim og styðji hendi á vegg
og þá bíti hann eiturslanga.
20Færir dagur Drottins ekki myrkur í stað ljóss?
Hann er dimmur, ekki bjartur.

Rétt og röng guðsdýrkun

21Ég hata, ég fyrirlít hátíðir yðar.
Ég hef enga ánægju af samkomum yðar.
22 Jafnvel þótt þér færið mér brennifórnir og kornfórnir
lít ég ekki við þeim,
né heldur matfórnum yðar af alikálfum.
23 Burt með glamur sálma þinna sem aðeins er hávaði.
Ég vil ekki heyra hörpuleik þinn.
24 Réttvísi skal streyma fram sem vatn
og réttlæti sem sírennandi lækur.
25 Færðuð þér mér sláturfórnir og kornfórnir
þessi fjörutíu ár í eyðimörkinni, Ísraelsmenn?
26 Báruð þér þá Sikkút, konung yðar,
og Kevan, stjörnuguð yðar, [
guði, sem þér hafið sjálfir búið til?
27 Ég mun reka yður í útlegð austur fyrir Damaskus, [
segir Drottinn, nafn hans er Guð hersveitanna.