1 Bæn Davíðs.
Hneig eyra þitt, Drottinn, og bænheyr mig
því að ég er hjálparvana og snauður.
2Vernda líf mitt því að ég er þér trúr.
Þú ert Guð minn,
hjálpa þjóni þínum sem treystir þér.
3Ver mér náðugur, Drottinn,
því að ég ákalla þig allan daginn.
4Lát þjón þinn fagna
því að ég hef sál mína til þín.
5Þú, Drottinn, ert góður og fús til að fyrirgefa,
gæskuríkur öllum sem ákalla þig.
6Hlýð, Drottinn, á bæn mína
og gef gaum að grátbeiðni minni.
7Þegar ég er í nauðum staddur ákalla ég þig
því að þú bænheyrir mig.
8Enginn er sem þú meðal guðanna, Drottinn,
og ekkert er sem verk þín.
9Allar þjóðir, sem þú hefur skapað,
munu koma og falla fram fyrir þér, Drottinn,
og tigna nafn þitt
10því að þú ert mikill og gerir undraverk,
þú einn ert Guð.
11Vísa mér veg þinn, Drottinn,
að ég gangi í sannleika þínum,
gef mér heilt hjarta, að ég tigni nafn þitt.
12Ég vil þakka þér, Drottinn, Guð minn, af öllu hjarta
og tigna nafn þitt að eilífu
13því að miskunn þín er mikil við mig,
þú hefur frelsað sál mína frá djúpi heljar.
14Guð, ofstopamenn réðust á mig,
hópur ofbeldismanna sóttist eftir lífi mínu
en þig höfðu þeir ekki fyrir augum.
15En þú, Drottinn, ert miskunnsamur og líknsamur Guð,
þolinmóður, gæskuríkur og harla trúfastur.
16Snú þér að mér og ver mér náðugur,
veit þjóni þínum kraft þinn
og hjálpa syni ambáttar þinnar.
17Gef mér tákn um gæsku þína
svo að hatursmenn mínir horfi á það sneyptir
að þú, Drottinn, hjálpar mér og huggar mig.