Vaxtartakmark Krists fyllingar

1 Ég, bandinginn vegna Drottins, áminni ykkur þess vegna um að hegða ykkur svo sem samboðið er þeirri köllun sem þið hafið hlotið. 2 Verið í hvívetna lítillát og hógvær. Verið þolinmóð, langlynd, umberið og elskið hvert annað. 3 Kappkostið að varðveita einingu andans í bandi friðarins. 4 Einn er líkaminn og einn andinn eins og Guð gaf ykkur líka eina von þegar hann kallaði ykkur. 5 Einn er Drottinn, ein trú, ein skírn, 6 einn Guð og faðir allra, sem er yfir öllum, með öllum og í öllum.
7 Sérhvert okkar þáði af Kristi sína náðargjöf. 8 Því segir ritningin: „Hann steig upp til hæða, hertók fanga og gaf mönnunum gjafir.“ 9 En „steig upp“, hvað merkir það annað en að hann hefur einnig stigið niður í undirdjúp jarðarinnar? 10 Sá sem steig niður er og sá sem upp sté, upp yfir alla himna til þess að fullna allt. 11 Og frá honum er sú gjöf komin að sumir eru postular, sumir spámenn, sumir trúboðar, sumir hirðar og kennarar. 12 Þeir eiga að fullkomna hin heilögu og láta þeim þjónustu í té, líkama Krists til uppbyggingar, 13 þangað til við verðum öll einhuga í trúnni og þekkingunni á syni Guðs, verðum fullþroska og náum vaxtartakmarki Krists fyllingar. 14 Við eigum ekki að halda áfram að vera börn sem hrekjast og berast fram og aftur af hverjum kenningarvindi og tæld af slægum mönnum með vélabrögðum villunnar. 15 Við eigum heldur að ástunda sannleikann í kærleika og vaxa í öllu upp til hans sem er höfuðið, Kristur. 16 Hann tengir líkamann saman og heldur honum saman með því að láta sérhverja taug inna sína þjónustu af hendi, allt eftir þeim krafti sem hann úthlutar hverri þeirra. Þannig lætur hann líkamann vaxa og byggjast upp í kærleika.

Nýtt líf

17 Þetta segi ég þá og vitna í nafni Drottins: Þið megið ekki framar hegða ykkur eins og heiðingjarnir hegða sér. Hugsun þeirra er allslaus, 18 skilningur þeirra blindaður og þeir eru fjarlægir lífi Guðs vegna vanþekkingarinnar, sem þeir lifa í, og síns harða hjarta. 19 Þeir eru tilfinningalausir og hafa ofurselt sig lostalífi svo að þeir fremja alls konar siðleysi af græðgi.
20 En svo hafið þið ekki lært að þekkja Krist. 21 Jesús er sannleikurinn og ég veit að þið hafið heyrt um hann og verið frædd um hann: 22 Þið eigið að hætta hinni fyrri breytni og afklæðast hinum gamla manni sem er spilltur af tælandi girndum 23 en endurnýjast í anda og hugsun og 24 íklæðast hinum nýja manni sem skapaður er í Guðs mynd og breytir eins og Guð vill og lætur réttlæti og sannleika helga líf sitt.
25 Leggið því af lygina og talið sannleika hvert við sinn náunga því að við erum hvert annars limir. 26 Ef þið reiðist þá syndgið ekki. Sólin má ekki setjast yfir reiði ykkar. 27 Gefið djöflinum ekkert færi. 28 Hinn stelvísi hætti að stela en leggi hart að sér og geri það sem gagnlegt er með höndum sínum svo að hann hafi eitthvað að miðla þeim sem þurfandi er. 29 Látið ekkert fúkyrði líða ykkur af munni heldur það eitt sem er gott til uppbyggingar, þar sem þörf gerist, til þess að það verði til góðs þeim sem heyra. 30 Hryggið ekki Guðs heilaga anda sem þið eruð innsigluð með til endurlausnardagsins. 31 Látið hvers konar beiskju, ofsa, reiði, hávaða og lastmæli vera fjarlægt ykkur og alla mannvonsku yfirleitt. 32 Verið góðviljuð hvert við annað, miskunnsöm, fús til að fyrirgefa hvert öðru eins og Guð hefur í Kristi fyrirgefið ykkur.