Fyrirgefning syndanna, nýtt líf

1 Börnin mín! Þetta skrifa ég ykkur til þess að þið skulið ekki syndga. En ef einhver syndgar, þá höfum við málsvara hjá föðurnum, Jesú Krist, hinn réttláta. 2 Hann er friðþæging fyrir syndir okkar og ekki einungis fyrir syndir okkar heldur líka fyrir syndir alls heimsins.
3 Þá vitum við að við þekkjum hann ef við höldum boðorð Guðs. 4 Sá sem segir: „Ég þekki hann,“ og heldur ekki boðorð hans er lygari og sannleikurinn er ekki í honum. 5 En hver sem varðveitir orð Guðs, hann elskar sannarlega Guð á fullkominn hátt. Þannig þekkjum við að við erum í honum. 6 Þeim sem segist vera í honum ber sjálfum að breyta eins og Jesús Kristur breytti.
7 Þið elskuðu, það er ekki nýtt boðorð sem ég rita ykkur, heldur gamalt boðorð sem þið hafið haft frá upphafi. Hið gamla boðorð er orðið sem þið heyrðuð. 8 Eigi að síður er það nýtt boðorð, er ég rita ykkur, og sannindi þess birtast í honum og í ykkur því að myrkrið er að hverfa og hið sanna ljós er þegar farið að skína.
9 Sá sem segist vera í ljósinu og hatar bróður sinn, hann er enn þá í myrkrinu. 10 Sá sem elskar bróður sinn býr í ljósinu og í honum er ekkert er leitt geti hann til falls.[ 11 En sá sem hatar bróður sinn er í myrkrinu og lifir í myrkrinu og veit ekki hvert hann fer því að myrkrið hefur blindað augu hans.
12 Ég rita ykkur, börnin mín, af því að Guð hefur fyrirgefið ykkur syndir ykkar vegna Jesú Krists. 13 Ég rita ykkur, foreldrar,[ af því að þið þekkið hann sem er frá upphafi. Ég rita ykkur, unglingar, af því að þið hafið sigrað hinn vonda.
14 Ég hef ritað ykkur, börn, af því að þið þekkið föðurinn. Ég hef ritað ykkur, foreldrar,[ af því að þið þekkið hann sem er frá upphafi. Ég hef ritað ykkur, unglingar, af því að þið eruð styrkir og orð Guðs býr í ykkur og þið hafið sigrað hinn vonda.
15 Elskið hvorki heiminn né það sem í heiminum er. Sá sem elskar heiminn elskar ekki föðurinn. 16 Því að allt sem maðurinn girnist, allt sem glepur augað, allt oflæti vegna eigna er ekki frá föðurnum heldur frá heiminum. 17 Og heimurinn fyrirferst og fýsn hans en sá sem gerir Guðs vilja varir að eilífu.

Andkristur

18 Börn mín, hin síðasta stund er runnin upp. Þið hafið heyrt að andkristur kemur og nú eru líka margir andkristar komnir fram. Af því vitum við að það er hin síðasta stund. 19 Þeir komu úr okkar hópi en heyrðu okkur ekki til. Ef þeir hefðu heyrt okkur til þá hefðu þeir áfram verið með okkur. En þetta varð til þess að augljóst yrði að enginn þeirra heyrði okkur til.
20 Þið þekkið öll sannleikann því að Hinn heilagi hefur smurt ykkur anda sínum. 21 Ég hef ekki skrifað ykkur vegna þess að þið þekkið ekki sannleikann heldur af því að þið þekkið hann og af því að engin lygi getur komið frá sannleikanum.
22 Hver er lygari ef ekki sá sem neitar að Jesús sé Kristur? Sá er andkristurinn sem afneitar föðurnum og syninum. 23 Hver sem afneitar syninum hefur ekki heldur fundið föðurinn. Sá sem játar soninn hefur og fundið föðurinn. 24 En haldið áfram að ígrunda boðskapinn sem þið heyrðuð í upphafi. Ef þið haldið stöðuglega við það sem þið heyrðuð í upphafi, þá munuð þið einnig vera stöðug í samfélagi við soninn og föðurinn. 25 Og þetta er fyrirheitið sem hann gaf okkur: Hið eilífa líf.
26 Þetta hef ég skrifað ykkur um þá sem eru að leiða ykkur afvega. 27 Andinn, sem Kristur smurði ykkur með, býr í ykkur og þið þurfið þess ekki að neinn kenni ykkur því andi hans fræðir ykkur um allt, hann er sannleiki en engin lygi. Verið stöðug í honum eins og hann kenndi ykkur.
28 Og nú, börnin mín, lifið í samfélagi við hann til þess að við getum, þegar hann birtist, átt djörfung og blygðumst okkar ekki fyrir honum þegar hann kemur. 29 Þið vitið að hann er réttlátur. Þá skiljið þið einnig að hver sem iðkar réttlætið er barn Guðs.