Dómurinn í vændum

1 En að því er varðar komu Drottins vors Jesú Krists og að við söfnumst til hans bið ég ykkur, bræður og systur,[ 2 að vera ekki fljót til að komast í uppnám eða verða hrædd, hvorki þótt vísað sé til andavitrunar né einhvers sem ég á að hafa kennt eða skrifað um að dagur Drottins sé þegar fyrir höndum. 3 Látið engan villa ykkur á nokkurn hátt. Ekki kemur dagurinn nema fráhvarfið komi fyrst og maður lögleysisins komi fram, sonur glötunarinnar, 4 sem setur sig á móti Guði og hreykir sér yfir allt sem heitir Guð eða helgur dómur, sest í musteri Guðs og gerir sjálfan sig að Guði.
5 Minnist þið ekki þess að ég sagði ykkur þetta meðan ég enn þá var hjá ykkur? 6 Þið vitið hvað aftrar honum nú. Hann á að bíða síns tíma. 7 Því að leyndardómur lögleysisins er þegar farinn að starfa en fyrst verður að ryðja þeim burt sem stendur í vegi. 8 Þá mun lögleysinginn opinberast en Drottinn Jesús mun koma og birtast, tortíma honum með anda munns síns og gera hann að engu. 9 Þegar lögleysinginn kemur fram er Satan að verki með alls kyns furðuverkum, lygatáknum, undrum 10 og alls konar ranglætisvélum sem blekkja þau sem eru á glötunarleið. Þau glatast af því að þau vildu ekki þiggja kærleikann til sannleikans svo að þau mættu verða hólpin. 11 Þess vegna sendir Guð þeim megna villu til þess að þau trúi lyginni. 12 Þannig verða þau öll dæmd sem trúðu ekki sannleikanum en höfðu velþóknun á ranglætinu.

Standið stöðug

13 En ætíð hlýt ég að þakka Guði fyrir ykkur, bræður og systur,[ sem Drottinn elskar. Guð útvaldi ykkur til þess að þið yrðuð frumgróði til hjálpræðis. Guð lét andann helga ykkur og þið trúið á sannleikann. 14 Til þessa kallaði hann ykkur. Hann lét mig boða ykkur fagnaðarboðskapinn um að þið skylduð öðlast hlutdeild í dýrð Drottins vors Jesú Krists. 15 Systkin,[ standið því stöðug og haldið fast við þær postullegu kenningar er ég hef flutt ykkur munnlega eða með bréfi.
16 En sjálfur Drottinn vor Jesús Kristur og Guð, faðir vor, sem elskaði oss og gaf oss í náð eilífa huggun og góða von, 17 huggi hjörtu yðar og styrki í sérhverju góðu verki og orði.