Dómur yfir ýmsum þjóðum

1 Orð Amosar, eins af fjárhirðunum í Tekóa, sem honum vitraðist um Ísrael á dögum Ússía Júdakonungs og á dögum Jeróbóams Jóassonar, Ísraelskonungs, tveimur árum fyrir jarðskjálftann.
2 Hann sagði:
Drottinn þrumar frá Síon, [
lætur rödd sína gjalla frá Jerúsalem
svo að hagar hjarðmannanna visna
og Karmeltindur skrælnar.
3Svo segir Drottinn:
Vegna þriggja, já, vegna fjögurra glæpa Damaskus
hverf ég ekki frá þessu:
Af því að þeir moluðu Gíleað með þreskisleðum úr járni
4mun ég senda eld gegn húsi Hasaels
og hann mun gleypa hallir Benhadads.
5Ég mun brjóta slagbrand Damaskus
og tortíma þeim sem situr í hásæti í Bíkat Aven, [
þeim sem ber veldissprotann í Bet Eden. [
Aramear [ verða fluttir í útlegð til Kír, hefur Drottinn sagt.
6Svo segir Drottinn:
Vegna þriggja, já, fjögurra glæpa Gasa
hverf ég ekki frá þessu:
Af því að þeir hafa flutt heil byggðarlög í útlegð
til að selja þau í hendur Edóm
7mun ég senda eld gegn múrum Gasa
og hann mun gleypa hallir hennar.
8Ég mun tortíma þeim sem situr í hásæti í Asdód,
þeim sem ber veldissprotann í Askalon.
Því næst beini ég hendi minni gegn Ekron
svo að þeim sem eftir eru af Filisteum verði eytt,
hefur Drottinn Guð sagt.
9Svo segir Drottinn:
Vegna þriggja, já, vegna fjögurra glæpa Týrusar
hverf ég ekki frá þessu:
Af því að þeir sendu heil byggðarlög í útlegð til Edóms
og virtu ekki bræðrasáttmálann
10mun ég senda eld gegn múrum Týrusar
og hann mun gleypa hallir hennar.
11Svo segir Drottinn:
Vegna þriggja, já, vegna fjögurra glæpa Edóms
hverf ég ekki frá þessu:
Af því að þeir ofsóttu bræður sína með sverði
og kæfðu alla samúð með þeim,
af því að þeir rændu í óslökkvandi reiði sinni
og héldu heift sinni sífellt vakandi
12þá mun ég senda eld til Teman
og hann mun gleypa hallirnar í Bosra.
13Svo segir Drottinn:
Vegna þriggja, já, vegna fjögurra glæpa Ammóníta
hverf ég ekki frá þessu:
Af því að þeir ristu þungaðar konur í Gíleað á kvið,
þegar þeir ætluðu að stækka land sitt,
14mun ég kveikja eld í múrum Rabba
og hann mun gleypa hallirnar þar
þegar heróp kveður við orrustudaginn,
þegar fárviðri geisar óveðursdaginn.
15Konungur þeirra verður að fara í útlegð,
hann og allir hirðmenn hans, segir Drottinn.