Ekki þrælar heldur börn

1 Með öðrum orðum: Alla þá stund sem erfinginn er ófullveðja er enginn munur á honum og þræli þótt hann eigi allt. 2 Hann er undir fjárhaldsmönnum og ráðsmönnum til þess tíma er faðirinn hefur ákveðið. 3 Þannig vorum við einnig, er við vorum ófullveðja, í ánauð heimsvættanna. 4 En þegar fylling tímans kom sendi Guð son sinn, fæddan af konu, fæddan undir lögmáli – 5 til þess að hann keypti lausa þá sem voru undir lögmáli og við yrðum börn Guðs. 6 En þar eð þið eruð börn, þá hefur Guð sent anda sonar síns í hjörtu okkar sem hrópar: „Abba, faðir!“ 7 Þú ert þá ekki framar þræll heldur barn. En ef þú ert barn, þá hefur Guð líka gert þig erfingja.
8 Forðum, er þið þekktuð ekki Guð, voruð þið þrælar guða sem eru ekki neinir guðir. 9 En nú, eftir að þið þekkið Guð, eða réttara sagt, eftir að Guð þekkir ykkur, hvernig getið þið snúið aftur til hinna veiku og fátæklegu vætta? Viljið þið þræla undir þeim að nýju? 10 Þið haldið upp á ákveðna daga og mánuði, tíðir og ár. 11 Ég er hræddur um að ég kunni að hafa erfiðað hjá ykkur til ónýtis.
12 Ég bið ykkur, bræður mínir og systur:[ Verðið eins og ég því að ég er orðinn eins og þið. Í engu hafið þið gert á hluta minn. 13 Þið vitið að sjúkleiki minn varð tilefni til þess að ég fyrst boðaði ykkur fagnaðarerindið. 14 En þið létuð ekki líkamsásigkomulag mitt verða ykkur til ásteytingar og óvirtuð mig ekki né sýnduð mér óbeit, heldur tókuð þið á móti mér eins og engli Guðs, eins og Kristi Jesú sjálfum. 15 Hvað er nú orðið úr blessunarbænum ykkar? Það vitni ber ég ykkur að augun hefðuð þið stungið úr ykkur og gefið mér ef auðið hefði verið. 16 Er ég þá orðinn óvinur ykkar vegna þess að ég segi ykkur sannleikann?
17 Þeir láta sér annt um ykkur en það er eigi af góðu heldur vilja þeir einangra ykkur til þess að þið látið ykkur annt um þá. 18 Það er ávallt gott að láta sér annt um það sem gott er og ekki aðeins meðan ég er hjá ykkur, 19 börn mín, sem ég að nýju el með harmkvælum þangað til Kristur er myndaður í ykkur! 20 Ég vildi ég væri nú hjá ykkur og gæti talað nýjum rómi því að ég er ráðalaus með ykkur.

Tveir sáttmálar

21 Segið mér, þið sem viljið vera undir lögmáli, heyrið þið ekki hvað lögmálið segir? 22 Ritað er að Abraham átti tvo sonu, annan við ambáttinni en hinn við frjálsu konunni. 23 Sonurinn við ambáttinni var fæddur á náttúrulegan hátt en sonurinn við frjálsu konunni var fæddur samkvæmt fyrirheiti. 24 Þetta hefur óeiginlega merkingu: Konurnar merkja tvo sáttmála: Annar er sá frá Sínaífjalli og elur börn til ánauðar, það er Hagar; 25 en Hagar merkir Sínaífjall í Arabíu[ og samsvarar hinni núverandi Jerúsalem því að hún er í ánauð ásamt börnum sínum. 26 En Jerúsalem, sem er í hæðum, er frjáls og hún er móðir vor 27 því að ritað er:
Ver glöð, óbyrja, sem ekkert barn hefur átt!
Hrópa og kalla hátt, þú sem ekki hefur jóðsjúk orðið.
Því að börn hinnar yfirgefnu eru fleiri
en hinnar sem manninn á.

28 En þið, bræður mínir og systur,[ eruð börn Guðs eins og Ísak af því að hann gaf fyrirheit um ykkur. 29 En eins og sá sem fæddur var á náttúrulegan hátt ofsótti forðum þann sem fæddur var á undursamlegan hátt, svo er það og nú. 30 En hvað segir ritningin? „Rektu burt ambátt þessa og son hennar því að ekki skal ambáttarsonurinn taka arf með syni frjálsu konunnar.“ 31 Þess vegna, bræður mínir og systur,[ erum við ekki ambáttar börn heldur börn frjálsu konunnar.