1Með öðrum orðum: Alla þá stund, sem erfinginn er ófullveðja, er enginn munur á honum og þræli, þótt hann eigi allt.2Hann er undir fjárhaldsmönnum og ráðsmönnum til þess tíma, er faðirinn hefur ákveðið.3Þannig vorum vér einnig, er vér vorum ófullveðja, þrælbundnir undir heimsvættirnar.4En þegar fylling tímans kom, sendi Guð son sinn, fæddan af konu, fæddan undir lögmáli,5til þess að hann keypti lausa þá, sem voru undir lögmáli, og vér fengjum barnaréttinn.6En þar eð þér eruð börn, þá hefur Guð sent anda sonar síns í hjörtu vor, sem hrópar: Abba, faðir!7Þú ert þá ekki framar þræll, heldur sonur. En ef þú ert sonur, þá ert þú líka erfingi að ráði Guðs.8Forðum, er þér þekktuð ekki Guð, þá voruð þér þrælar þeirra, sem í eðli sínu eru ekki guðir.9En nú, eftir að þér þekkið Guð, eða réttara sagt, eftir að Guð þekkir yður, hvernig getið þér snúið aftur til hinna veiku og fátæklegu vætta? Viljið þér þræla undir þeim að nýju?10Þér hafið gætur á dögum og mánuðum, vissum tíðum og árum.11Ég er hræddur um yður, að ég kunni að hafa haft erfiði fyrir yður til ónýtis.12Ég bið yður, bræður: Verðið eins og ég, því að ég er orðinn eins og þér. Í engu hafið þér gjört á hluta minn.13Þér vitið, að sjúkleiki minn varð tilefni til þess, að ég fyrst boðaði yður fagnaðarerindið.14En þér létuð ekki líkamsásigkomulag mitt verða yður til ásteytingar og óvirtuð mig ekki né sýnduð mér óbeit, heldur tókuð þér á móti mér eins og engli Guðs, eins og Kristi Jesú sjálfum.15Hvað er nú orðið úr blessunarbænum yðar? Það vitni ber ég yður, að augun hefðuð þér stungið úr yður og gefið mér, ef auðið hefði verið.16Er ég þá orðinn óvinur yðar, vegna þess að ég segi yður sannleikann?17Þeir láta sér annt um yður, en það er eigi af góðu, heldur vilja þeir einangra yður, til þess að þér látið yður annt um þá.18Það er ávallt gott að láta sér annt um það, sem gott er, og ekki aðeins meðan ég er hjá yður,19börn mín, sem ég að nýju el með harmkvælum, þangað til Kristur er myndaður í yður!20Ég vildi ég væri nú hjá yður og gæti talað nýjum rómi, því að ég er ráðalaus með yður.21Segið mér, þér sem viljið vera undir lögmáli, heyrið þér ekki hvað lögmálið segir?22Ritað er, að Abraham átti tvo sonu, annan við ambáttinni, en hinn við frjálsu konunni.23Sonurinn við ambáttinni var fæddur á náttúrlegan hátt, en sonurinn við frjálsu konunni var fæddur samkvæmt fyrirheiti.24„Þetta hefur óeiginlega merkingu: Konurnar merkja tvo sáttmála: Annar er sá frá Sínaífjalli og elur börn til ánauðar, það er Hagar;“25en Hagar merkir Sínaífjall í Arabíu og samsvarar hinni núverandi Jerúsalem, því að hún er í ánauð ásamt börnum sínum.26En Jerúsalem, sem í hæðum er, er frjáls, og hún er móðir vor,27því að ritað er: Ver glöð, óbyrja, sem ekkert barn hefur átt! Hrópa og kalla hátt, þú sem ekki hefur jóðsjúk orðið! Því að börn hinnar yfirgefnu eru fleiri en hinnar, sem manninn á.28En þér, bræður, eruð fyrirheits börn eins og Ísak.29En eins og sá, sem fæddur var á náttúrlegan hátt, ofsótti forðum þann, sem fæddur var á undursamlegan hátt, svo er það og nú.30En hvað segir ritningin? Rek burt ambáttina og son hennar, því að ekki skal ambáttarsonurinn taka arf með syni frjálsu konunnar.31Þess vegna, bræður, erum vér ekki ambáttar börn, heldur börn frjálsu konunnar.

4.4 Fylling tímans Mrk 1.15; Ef 1.10 – sendi son sinn Jóh 1.14; Róm 1.3
4.5 Keypti lausa Gal 3.13+ – yrðum börn Guðs Gal 3.26+
4.6 Abba Róm 8.15
4.8 Ekki neinir guðir 2Kro 13.9; Jes 37.19; Jer 2.11; 1Kor 8.4-6
4.9 Þekkir 1Kor 8.3
4.10 Haldið upp á daga Jes 1.13; Róm 14.5; Kól 2.16-23
4.12 Eins og ég 1Kor 4.16; 9.20-22
4.14 Tókuð á móti mér Matt 10.40; Jóh 13.20; 1Kor 2.3-5; 2Kor 4.10-12
4.19 Börn í Kristi 1Kor 4.15 – með harmkvælum 2Kor 4.10-12; Kól 1.24 – Kristur er myndaður í ykkur Róm 8.9-10
4.22 Tveir synir Abrahams 1Mós 16.15; 21.2
4.23 Samkvæmt fyrirheiti 1Mós 17.16; Róm 9.7-9
4.25 Hin núverandi Jerúsalem í ánauð Jóh 8.33-35
4.26 Jerúsalem í hæðum Heb 12.22; Opb 3.12; 21.2,10
4.27 Ver glöð … Jes 54.1
4.30 Sbr 1Mós 21.10; Jóh 8.35