Hann er upp risinn

1 En í afturelding fyrsta dag vikunnar komu þær til grafarinnar með ilmsmyrslin sem þær höfðu búið. 2 Þær sáu þá að steininum hafði verið velt frá gröfinni 3 og þegar þær stigu inn fundu þær ekki líkama Drottins Jesú.[ 4 Þær skildu ekkert í þessu en þá brá svo við að hjá þeim stóðu tveir menn í leiftrandi klæðum. 5 Þær urðu mjög hræddar og hneigðu andlit til jarðar. En þeir sögðu við þær: „Hví leitið þér hins lifanda meðal dauðra? 6 Hann er ekki hér, hann er upp risinn.[ Minnist þess hvernig hann talaði við yður meðan hann var enn í Galíleu. 7 Hann sagði að Mannssonurinn skyldi framseldur verða í hendur syndugra manna og krossfestur en rísa upp á þriðja degi.“
8 Og þær minntust orða hans, 9 sneru frá gröfinni og kunngjörðu allt þetta þeim ellefu og öllum hinum. 10 Þessar konur voru þær María Magdalena, Jóhanna og María móðir Jakobs og hinar sem voru með þeim. Þær sögðu postulunum frá þessu. 11 En þeir töldu orð þeirra markleysu eina og trúðu þeim ekki. 12 Pétur stóð þó upp og hljóp til grafarinnar, skyggndist inn og sá þar líkklæðin ein. Fór hann heim síðan og undraðist það sem við hafði borið.[

Vertu hjá okkur

13 Tveir þeirra fóru þann sama dag til þorps nokkurs sem er um sextíu skeiðrúm[ frá Jerúsalem og heitir Emmaus. 14 Þeir ræddu sín á milli um allt þetta sem gerst hafði. 15 Þá bar svo við, er þeir voru að tala saman og ræða þetta, að Jesús sjálfur nálgaðist þá og slóst í för með þeim. 16 Augu þeirra voru svo blinduð að þeir þekktu hann ekki. 17 Og hann sagði við þá: „Hvað er það sem þið ræðið svo mjög á göngu ykkar?“
Þeir námu staðar, daprir í bragði, 18 og annar þeirra, Kleófas að nafni, sagði við hann: „Þú ert víst sá eini aðkomumaður í Jerúsalem sem veit ekki hvað þar hefur gerst þessa dagana.“
19 Hann spurði: „Hvað þá?“
Þeir svöruðu: „Þetta um Jesú frá Nasaret sem var spámaður, máttugur í verki og orði fyrir Guði og öllum mönnum. 20 Æðstu prestar og höfðingjar okkar létu dæma hann til dauða og krossfesta hann. 21 Við vonuðum að hann væri sá er leysa mundi Ísrael. En nú er þriðji dagur síðan þetta bar við. 22 Þá hafa og konur nokkrar úr okkar hópi gert okkur forviða. Þær fóru árla til grafarinnar 23 en fundu ekki líkama hans og komu og sögðust jafnvel hafa séð engla í sýn er sögðu hann lifa. 24 Nokkrir þeirra sem með okkur voru fóru til grafarinnar og fundu allt eins og konurnar höfðu sagt en hann sáu þeir ekki.“
25 Þá sagði hann við þá: „Skilningslausu menn, svo tregir til að trúa því öllu sem spámennirnir hafa sagt fyrir um! 26 Átti ekki Kristur að líða þetta og ganga svo inn í dýrð sína?“ 27 Og hann byrjaði á Móse og öllum spámönnunum og útlagði fyrir þeim það sem um hann er ritað í öllum ritningunum.
28 Þeir nálguðust nú þorpið sem þeir ætluðu til en hann lét sem hann vildi halda lengra. 29 Þeir lögðu þá fast að honum og sögðu: „Vertu hjá okkur því að kvölda tekur og degi hallar.“ Og hann fór inn til að vera hjá þeim. 30 Og svo bar við, er hann sat til borðs með þeim, að hann tók brauðið, þakkaði Guði, braut það og fékk þeim. 31 Þá opnuðust augu þeirra og þeir þekktu hann en hann hvarf þeim sjónum. 32 Og þeir sögðu hvor við annan: „Brann ekki hjartað í okkur meðan hann talaði við okkur á veginum og lauk upp fyrir okkur ritningunum?“
33 Þeir stóðu samstundis upp og fóru aftur til Jerúsalem. Þar fundu þeir þá ellefu og þau er með þeim voru saman komin, 34 en þau sögðu: „Sannarlega er Drottinn upp risinn og hefur birst Símoni.“
35 Hinir sögðu þá frá því sem við hafði borið á veginum og hvernig þeir höfðu þekkt hann þegar hann braut brauðið.

Friður sé með yður

36 Nú voru þau að tala um þetta og þá stendur hann sjálfur meðal þeirra og segir við þau: „Friður sé með yður!“[
37 En þau skelfdust og urðu hrædd og hugðust sjá anda. 38 Hann sagði við þau: „Hví eruð þið óttaslegin og hvers vegna vakna efasemdir í hjarta ykkar? 39 Lítið á hendur mínar og fætur að það er ég sjálfur. Þreifið á mér og gætið að. Ekki hefur andi hold og bein eins og þið sjáið að ég hef.“
40 Þegar hann hafði þetta mælt sýndi hann þeim hendur sínar og fætur.[ 41 Enn gátu þau ekki trúað fyrir fögnuði og undrun. Þá sagði hann við þau: „Hafið þið hér nokkuð til matar?“ 42 Þau fengu honum stykki af steiktum fiski 43 og hann tók það og neytti þess frammi fyrir þeim.
44 Og hann sagði við þau: „Meðan ég var enn meðal ykkar sagði ég ykkur: Allt sem ritað er um mig í lögmáli Móse, spámönnunum og sálmunum á að rætast.“
45 Síðan lauk hann upp huga þeirra að þau skildu ritningarnar. 46 Og hann sagði við þau: „Svo er skrifað að Kristur eigi að líða og rísa upp frá dauðum á þriðja degi 47 og að prédika skuli í nafni hans öllum þjóðum að taka sinnaskiptum og þiggja fyrirgefningu synda og hefja það í Jerúsalem. 48 Þið eruð vottar þessa. 49 Ég sendi ykkur andann sem faðir minn hét ykkur en verið kyrr í borginni uns þið íklæðist krafti frá hæðum.“

Með miklum fögnuði

50 Síðan fór hann með þau út í nánd við Betaníu, hóf upp hendur sínar og blessaði þau. 51 En það varð, meðan hann var að blessa þau, að hann skildist frá þeim og var upp numinn til himins.[ 52 En þau féllu fram og tilbáðu hann og sneru aftur til Jerúsalem með miklum fögnuði. 53 Og þau voru stöðugt í helgidóminum og lofuðu Guð.