1 Eitt sinn fór Samson til Gasa. Þar sá hann skækju og gekk inn til hennar. 2 Þá var Gasabúum sagt: „Samson er kominn hingað.“ Og þeir umkringdu hann og gerðu honum fyrirsát alla nóttina í borgarhliðinu en höfðu þó hljótt um sig alla nóttina því að þeir hugðust drepa hann þegar birti af degi. 3 Samson svaf til miðnættis en um miðja nótt reis hann á fætur, þreif hurðirnar á borgarhliðinu ásamt báðum dyrastöfunum, kippti þeim upp ásamt slagbrandinum og lagði á herðar sér og bar þær efst upp á fjallið sem er gegnt Hebron.

Samson og Dalíla

4 Eftir þetta bar svo við að Samson felldi ástarhug til konu einnar í Sórekdal. Hún hét Dalíla. 5 Höfðingjar Filistea komu til hennar og sögðu við hana: „Ginntu hann og komstu að því í hverju hinir miklu kraftar hans eru fólgnir og með hvaða ráðum við getum yfirbugað hann svo að við náum að binda hann og þjá. Við munum hver um sig gefa þér þúsund sikla silfurs og hundraði betur.“ 6 Dalíla sagði þá við Samson: „Segðu mér í hverju hinir miklu kraftar þínir eru fólgnir og með hverju þú verður bundinn svo að menn fái ráðið við þig.“ 7 Samson svaraði henni: „Ef menn binda mig með sjö nýjum þvengjum, sem ekki eru enn orðnir þurrir, verð ég linur og eins og hver annar maður.“ 8 Þá færðu höfðingjar Filistea henni sjö nýja þvengi sem ekki voru þornaðir og hún batt hann með þeim. 9 En mennina, sem um hann sátu, hafði hún hjá sér í svefnhúsinu. Því næst sagði hún við hann: „Filistear hafi þig, Samson.“ Þá sleit hann sundur strengina eins og hörþráður hrekkur sundur þegar eldur er nærri og ekki varð komist fyrir afl hans.
10 Þá sagði Dalíla við Samson: „Þú hefur blekkt mig og logið að mér. Segðu mér nú með hverju þú verður bundinn.“ 11 Hann svaraði: „Ef menn binda mig með nýjum reipum, sem ekki hafa verið höfð til neinnar vinnu, verð ég linur og eins og hver annar maður.“ 12 Þá tók Dalíla ný reipi, batt hann með þeim og sagði við hann: „Filistear hafi þig, Samson.“ Og mennirnir, sem um hann sátu, voru í svefnhúsinu. En hann sleit þau af armleggjum sér sem þræðir væru.
13 Og Dalíla sagði við Samson: „Enn hefurðu blekkt mig og logið að mér. Segðu mér með hverju þú verður bundinn.“ Og hann sagði við hana: „Ef þú vefur hárlokkana sjö á höfði mér saman við uppistöðuna í vef og festir með nagla verð ég linur og eins og hver annar maður.“ 14 Meðan hann svaf tók Dalíla hárlokkana sjö á höfði hans, óf þá saman við uppistöðuna og festi þá við vegginn með nagla og sagði við hann: „Filistear hafi þig, Samson.“ Þá vaknaði hann af svefninum og kippti út vefjarnaglanum og uppistöðunni.[
15 Þá sagði hún við hann: „Hvernig getur þú sagt: Ég elska þig, ef þú ert ekki einlægur við mig? Þrisvar hefur þú nú blekkt mig og ekki sagt mér í hverju hið mikla afl þitt er fólgið.“ 16 Hún nauðaði í honum alla daga með orðum sínum og lagði svo fast að honum að hann varð dauðleiður á því 17 og sagði henni allan hug sinn og mælti: „Aldrei hefur rakhnífur komið á höfuð mitt því að ég var helgaður Guði frá móðurlífi. Væri hár mitt skorið hyrfu kraftar mínir og ég yrði linur og eins og allir aðrir menn.“
18 Þegar Dalíla sá að hann hafði trúað henni fyrir öllu sendi hún eftir höfðingjum Filistea og lét segja þeim: „Nú skuluð þið koma því að hann hefur trúað mér fyrir öllu.“ Þá fóru höfðingjar Filistea til hennar og höfðu silfrið með sér. 19 Hún svæfði hann í kjöltu sinni, kallaði á mann og lét hann skera hárlokkana sjö af höfði hans. Þannig veikti hún hann og afl hans var horfið frá honum. 20 Þá sagði hún: „Filistear hafi þig, Samson.“ Hann vaknaði af svefninum og hugsaði: „Ég slepp í þetta sinn sem hin fyrri og slít mig lausan.“ En hann vissi ekki að Drottinn var vikinn frá honum. 21 Filistear tóku hann höndum, stungu úr honum augun og fóru með hann niður til Gasa. Þeir færðu hann í eirfjötra og varð hann að draga kvörn í dýflissunni. 22 En höfuðhár hans tók aftur að vaxa eftir að það hafði verið skorið.

Samson deyr

23 Nú söfnuðust höfðingjar Filistea saman til þess að færa Dagón,[ guði sínum, fórn mikla og gera sér glaðan dag enda sögðu þeir: „Guð okkar hefur selt óvininn Samson okkur í hendur.“ 24 Þegar menn sáu hann vegsömuðu þeir guð sinn og sögðu: „Guð okkar hefur gefið í okkar hendur fjandmanninn sem eytt hefur land okkar og drepið marga af okkar mönnum.“ 25 En er þeir gerðust glaðir sögðu þeir: „Látið sækja Samson til þess að skemmta okkur.“ Létu þeir nú sækja Samson úr dýflissunni og varð hann að skemmta þeim en þeir höfðu sett hann milli súlnanna. 26 Þá sagði Samson við sveininn sem leiddi hann: „Slepptu mér og leyfðu mér að þreifa á súlunum sem húsið hvílir á svo að ég geti stutt mig við þær.“ 27 Húsið var fullt af körlum og konum. Þar voru og allir höfðingjar Filistea og uppi á þakinu voru um þrjú þúsund karlar og konur sem horfðu á meðan Samson skemmti.
28 Þá hrópaði Samson til Drottins og sagði: „Drottinn Guð, minnstu mín. Styrktu mig nú, Guð, í þetta eina sinn svo að ég geti hefnt mín á Filisteum fyrir bæði augu mín í einu.“ 29 Því næst þreif Samson í báðar miðsúlurnar, sem húsið hvíldi á, hægri hendinni í aðra og vinstri hendinni í hina og þrýsti á. 30 Þá mælti Samson: „Deyi ég nú með Filisteum.“ Síðan lagðist hann á af öllu afli svo að húsið féll niður á höfðingjana og allt fólkið sem í því var. Þeir sem hann drap um leið og hann beið sjálfur bana voru fleiri en þeir er hann hafði drepið um ævina. 31 Bræður hans komu og allt ættfólk hans, tóku hann og fóru með hann þaðan og jörðuðu hann milli Sorea og Estaól í gröf Manóa föður hans. En hann hafði verið dómari í Ísrael í tuttugu ár.