Vertu ei óskammfeilinn

1Reið þig ekki á auð þinn
og segðu ekki: „Ég á allt sem ég þarfnast.“
2 Legg eigi sál þína og mátt í það
að eltast við girndir hjartans.
3 Segðu ekki: „Ræður nokkur yfir mér?“
Þess mun Drottinn hegna.
4 Segðu ekki: „Ég hef syndgað og hvað gerði það til?“
Biðlund Drottins er mikil.
5 Vertu ekki svo viss um fyrirgefningu
að þú drýgir synd á synd ofan.
6 Segðu ekki: „Miskunn Drottins er mikil,
hann mun fyrirgefa mér allar syndir.“
Hjá honum er miskunn að finna en einnig reiði,
til syndara ber hann heiftarhug.
7 Drag eigi að hverfa aftur til Drottins,
fresta því ekki dag frá degi.
Reiði Drottins kemur óvænt yfir,
á degi hegningar er úti um þig.
8 Reið þig ekki á rangfenginn auð,
hann mun þér gagnslaus á reynslutíma.

Einlægni og sjálfsstjórn

9Vinsa ei korn hvernig sem blæs,
gakk eigi hverja götu sem fyrir verður,
þannig ferst syndara sem hræsnar.
10 Haltu fast við sannfæringu þína,
ver sjálfum þér samkvæmur í orðum.
11 Ver reiðubúinn til að hlusta á aðra
en hugsa þig vel um áður en þú svarar.
12 Granna þínum skaltu svara hafir þú þekkingu til,
set ella tönn fyrir tungu.
13 Af tali hlýst heiður en einnig vansæmd,
tunga manns getur orðið honum til falls.
14 Þú skalt ekki kallast rógberi,
nota eigi tungu þína öðrum til falls.
Þjófur verður sér til skammar,
sá sem talar tungum tveim hlýtur harðan dóm.
15 Bregstu hvorki í stóru né smáu.